Smá fréttir

Datt í hug að nefna það hér að ég er búinn með bæði skyndihjálpina sem ég minntist á fyrr og einnig bóklegan hluta C og D réttinda =D

Nú bíð ég spenntur eftir að Knútur karlinn hringi í mig svo að ég geti byrjað á verklegu tímunum! Þarf að uppfylla 12 stundir á hvort til að vera liðtækur fyrir verklega prófið og ég býst við því að ég klári vörubílinn fyrst þar sem hann er minni og liðlegri en 15metra rúta í akstri innanbæjar ;) Held það sé ráðlegra allavega =D

Eftir allt þetta nám þá hef ég öðlast allt annað álit á rútu og vörubílstjórum og ber miklu meiri virðingu fyrir þeim (flestum)..