Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Já, ég er búinn að vera að leika mér með Photoshop núna í kvöld, aðeins að æfa mig með hitt og þetta, reyna að færa mig jafnvel úr Fireworks í Photoshop þegar ég er að hanna vefi og slíkt. Ákvað að skella hingað inn tveimur myndum sem ég var að leika mér með.
Þetta er mynd sem ég klippti niður, var tekin í desember af Eydísi frænku af okkur, ég kippti mér út og tók mig til og skellti nokkrum vel völdum effectum á.
Svo er hér mynd af mér sem ég var að reyna að gera soldið gamaldags að sjá, soldið úr fókus að sjá, skrítnir litir og svo þessi klassíski „vignette“ effect til að toppa allt ;)
Hvernig finnst ykkur ?
