Jæja, þá er komin nýrri útgáfa af viðbótinni og er hún fáanleg með því að smella hér.
Eina sem á að þurfa til að setja þessa viðbót upp er að í wp-config.php sé eftirfarandi stilling svona: define (‘WPLANG’, ‘is_IS’);
Eftirfarandi er svokallaður changelog sem er að vísu á ensku, en það er skilyrði sem WordPress.org setur =)
Changelog:
0.4 (2010-03-10)
Lagfærði:
+ Skilboð gerð skiljanlegri
0.3 (2010-03-02)
Bætti við:
+ Villuboð ef cURL er ekki uppsett
+ nota nú sys_get_tmp_dir til að fá upp tmp geymslu þjóns
0.2 (2010-02-28-r1)
Bætti við:
+ athuga hvort languages mappan sér til inni í wp-includes, ef til uppfæra eðlilega, ef ekki, búa hana þá til fyrir uppfærslu.Lagfærði:
+ breytti útliti á reitnum sem birtir viðbótina í haus stjórnborðs.
+ lagaði titil viðbótar á stjórnborðinu.
0.1 (2010-02-28)
Fyrsta útgáfan komin í gagnið.
+ athuga með hvort nýjasta útgáfan sé í notkun, ef nýrra til sækja nýrri og skrifa yfir eldri
Ef þú hefur einhverjar athugasemdir, tilmæli eða vilt á annað borð tjá þig um viðbótina er þér bent á mótsvörin við þessari færslu ;D
Prófaði að setja þetta upp á einni síðu og þegar ég virkjaði þessa viðbót fékk ég þessi villuskilaboð:
„Warning: file_get_contents(/home/[user]/[domain].is/wp-content/plugins/ar-wpis/curr-version.txt) [function.file-get-contents]: failed to open stream: No such file or directory in /home/[user]/[domain].is/wp-content/plugins/ar-wpis.php on line 136″
Ég setti ar-wpis.php skrána bara beint í /wp-content/plugins/ möppuna. Ég átti líklega að upload-a allri „ar-wpis“ möppunni yfir í plugins. Ég prófaði það og þá kom ekki þessi villa. Spurning að bæta við smá install instructions ;)
Einn punktur: Ef maður er ekki með nýjustu útgáfuna af WordPress þá er uppfærslu-tilkynningin frá WordPress alveg klesst við „WPis 0.4 (útg. 2010-03-02) (athuga með þýðingu)“:
http://dl.dropbox.com/u/162252/ar-wpis.PNG
Ennþá meira klesst eftir að maður er búinn að athuga með þýðingu:
http://dl.dropbox.com/u/162252/ar-wpis-check.PNG
Það er spurning hvort þetta sé besti staðurinn fyrir þessi skilaboð. Er nauðsynlegt að þetta sé alltaf sjáanlegt á öllum síðum í wp-admin?
Jámm, spurning að ég setji þetta frekar á sér undirsíðu á stjórnborðinu, það var upphaflega pælingin hvort eðer. Og jú, það er ætlast til að mappan sjálf sé sett í plugins.
Ég er búinn að lagfæra pakkann til að hann sé upphleðsluhæfur (upload) í gegnum stjórnborð WordPress.
Já, ég held að það væri fínt að setja þetta á sérstaka undirsíðu – þetta er ekki eitthvað sem maður þarf að tékka á hverjum degi.
Annað… þegar ég smellti á „athuga með þýðingu“ þá komu skilaboð um að ég væri með nýjasta. En ég var ekki að nota nýjustu skrána frá ykkur – ég var nú þegar með gamla þýðingarskrá frá binni.is
Ég gleymdi að tæma textaskjölin sem eru með í pakkanum, þess vegna komu þessi skilaboð. Uppfærður pakki er núna á sömu slóð =)