Sá fyrsti kom

Fyrsti aðventukrans sem frúin reynir að gera um ævina, verð nú bara að játa það að hann er mjög fallegur hjá henni =)

Annars elska ég þennan tíma núna, það er snjór úti, skítakuldi og bit í loftinu þegar maður fer út. Ljósin eru að koma upp í öllum gluggum.. spurning um að fara að eltast við jólatré sem er búið að kveikja á til að ljósmynda þau líka? ;)

Verð samt eiginlega að verða mér út um þrífót áður en ég pæli í því held ég =P

 

Vel heppnað kvöld

Þá er enn einu fjölskyldukvöldinu lokið, börnin komin í bælið og allir sáttir og sælir með kvöldið. Mér hefur lengi þótt það gott að hafa svona hefðir, fjölskyldukvöldið okkar er oftast á laugardögum og þá erum við með einhvern mat sem við getum borðað fyrir framan sjónvarpið og við horfum á einhverja góða mynd. Í kvöld var það ekkert annað en gamla góða Santa Claus frá því herrans ári 1985. Ég sver það að ég hef ekki horft á hana í svo mörg ár að ég hreinlega gekk í barndóm aftur að horfa á hana með fjölskyldunni áðan.

Ég veit að það eru margir sem eru alfarið á móti því að vera að hugsa um jólin í nóvember, hvað þá að gera eitthvað sem tengist þeim. En ég er annarar skoðunar.. Ég er faðir tveggja barna sem ég vil að hafi gaman af jólunum. Núna í nóvember ætlum við til dæmis að föndra jólaskraut hérna heima, músastiga, útklippta jólasveina og margt fleirra, til þess að geta hengt þetta dóterý upp 1. desember. Ef það má ekki hugsa um jólin fyrr en í desember þá er hreinlega ekki nægur tími til að gera sig tilbúin fyrir jólin.

Ég er alveg viss um það að ef fólk gæfi sér meiri tíma, hætti að eltast við það sem við erum sífellt að eltast við.. bara njóta þess að vera með fjölskyldunni í staðin og gera hið sama og við erum að gera þá myndi flestum líða margfalt betur. Ég er alltaf að átta mig á því betur og betur hve heppinn ég er að eiga þessi börn og þessa yndislegu konu sem ég á, ég vil gera meira fyrir þau og með þeim.

Er ekki alltaf sagt líka að batnandi mönnum sé best að lifa?