Ferilskrá

Persónulegar upplýsingar

Nafn: Axel Rafn Benediktsson.
Fæðingardagur: 13. desember 1979.
Heimilisfang: Veghús 21, 112 Rvk.
Netfang: axelrafn [ hjá ] axelrafn [ . ] org
Fjölskylduhagir: Giftur og á tvö börn fædd 2003 og 2005.

Menntun og Námskeið

Lauk gagnfræðaprófi í Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar 1995.
Stundaði nám í Iðnskólanum í Reykjavík frá 1995-1998 og lauk þar 6 önnum í tölvunarfræði II

Öku- og vinnuvélaréttindi

Er með meirapróf til aksturs á leigubifreiðum (B/Far), hópbifreiðum (D) og vörubílum (C).
Ég er einnig með vinnuvéla réttindi I og bóklegt próf á þó nokkur önnur vinnuvélaréttindi.

Starfsferill

Guðmundur Tyrfingsson ehf.
2010 (núverandi)
Vinn við að keyra hinar ýmsu stærðir af hópferðarbílum.

Kaffi Sel.
2009 (sumarstarf), 2010 (sumarstarf)
Vann bæði inni í golfskálanum í ýmsum störfum, þám. í eldhúsinu, barnum og fleirru tilfallandi. Auk þess að vera úti við að slá sjálfar brautirnar og annað dekur við völlinn.

Securitas.
2008-2008
Vann sem öryggisvörður í Hagkaup í Kringlunni.

Hugsandi menn.
2007-2008
Vann þar sem kerfistjóri, sá um allar notendavélar og þjóna í tengslum við fyrirtækið og þeirra viðskiptavini, ásamt ýmislegri annarri þjónustu.

Mamma ehf.
2006-2007
Starfaði þar fyrst sem sölufulltrúi, var síðan færður yfir í tæknideild vegna mikillar þekkingar á tæknilegum málum. Starfið í tæknideildinni fólst m.a. í því að aðstoða fólk með uppsetningar á neti, tölvu- og sjónvarpsbúnaði ásamt því að leysa úr öðrum tæknilegum vandamálum heimila og fyrirtækja. Kom einnig að tenginum nets, sjónvarps og síma yfir ljósleiðara Gagnaveitunnar.

IoD / Tölvulistinn.
2005-2006
Tímabundið starf við þróun á núverandi vefsíðu Tölvulistans.

Magus ehf.
2002-2006
Starfaði þar sem kerfisstjóri, við uppsetningu og viðhaldi á vefþjónum, uppsetningu á vefsíðum, vefhönnun ásamt forritun á vefum fyrir einstaklinga og ýmis fyrirtækja. Einnig sá ég um uppsetningu á gSHDSL kerfi, ásamt 802.11a/b þráðlausu dreifineti.

Tungumál

Ég rita, les og tala ensku ágætlega. Get lesið dönsku, norsku og sænsku lauslega.

Tölvuþekking

Hef mikla reynslu og kunnáttu í Windows (2000/XP/2003 Server), Linux, Unix og Mac OS X. Hef forritað lauslega í C/C++, er mjög vanur PHP4/5 og MySQL.
Hef einnig mikla/góða kunnáttu og reynslu af: Apache, Named (bind), pure-ftpd, qmail, sendmail, OpenVPN, LVM, Raid ásamt ýmsu öðru.
Undanfarin ár hef ég unnið mikið með Joomla, Magento en þó sérstaklega WordPress. Ég hef verið að hanna þemur og forrita viðbætur fyrir WordPress.

Áhugamál

Mín helstu áhugamál eru fjölskyldan, tölvur, tækni, tónsmíðar og ferðalög. Einnig hef ég brennandi áhuga á mótorhjólum og öllu sem viðkemur þeim.