Vetrarfílingur

Ég er ekki frá því að ég sé kominn í smá vetrarfíling.. stóð sjálfan mig að því að nota leitarorðið „jóla“ á youtube og svo mundi ég eftir því að ég hafði breytt um skjámynd á tölvunni um daginn í þetta..

Svo til að toppa allt þá var ég með iTunes í gangi þegar ég var að vinna við þessa litlu færslu og þetta lag skaust í gang..

MacOS X Lion (10.7)

Jæja.. þá er maður búinn að uppfæra hjá sér úr 10.6 í 10.7, so far so good ef ég á að segja alveg satt..
Eina vesenið sem ég hef lent í fram að þessu er að UTF8 virkaði ekki sem skildi þegar ég ssh’a mig við Ubuntu þjón sem á er keyrandi screen með irssi í gangi.. Vandamálið er víst það að í /etc/ssh_config á 10.7 er ein lína sem sendir LC_* breytur áfram á Ubuntu þjóninn, trikkið er að commenta þá línu út og þá er allt í góðu =)

Breyta:

Host *
SendEnv LANG LC_*
# ForwardAgent no

Í:

Host *
# SendEnv LANG LC_*
# ForwardAgent no

Læt svo vita ef ég finn eitthvað annað sem „plagar“ mig ;D

Android Vesen

Ég, eins og svo margir aðrir, er með Android síma. Sem er ekki frá sögu færandi nema hvað að ég hef verið að lenda í töluverðu veseni með símann núna upp á síðkastið með að ýmis forrit frjósa þegar ég ætlaði að nota það.

Eftir smá leit á netinu komst ég að því að þetta er víst bara nokkuð algengt vandamál útum allan heim síðan í Júní á þessu ári, orsökin er sögð vera margir hlutir en engin af þeim tengdur þeim næsta.

Ég fór svo að skoða loggana á símanum mínum og fikta í hinu og þessu og sé þá að það sem er að valda þessum vanda hjá mér er uppfærsla á Google Maps forritinu sem er nýverið búin að renna inn á símann hjá mér. Eitthvað í henni gerir það að völdum að ég gat td. ekki bætt við widgets (smáforritum) á skjáborðið hjá mér og sumir skjáir undir stillingum hreinlega dóu þegar ég ætlaði að nota þá.

Lausnin við þessu er ekki að vera svo dramatískur að stilla símann á „Factory Defaults“ heldur bara að taka út þessa uppfærslu af Google Maps, ég þurfti ekki einu sinni að endurræsa símann.

Þannig að, ef þú ert að lenda í þessari eða svipaðri villu, þá gætirðu prófað að taka út uppfærsluna fyrir Google Maps og prófa aftur. Ég sjálfur gerði óvirka sjálfvirku uppfærsluna á Google Maps til að ég gæti svo bara uppfært þetta sjálfur síðar til að sjá hvort sé búið að laga þetta eða ekki =)

Fyrsta ferð sumarsins

Já, eða sko, fyrsta alvöru ferð sumarsins.

Kom heim núna í dag með 14 frakka eftir 8 daga ferð um óbyggðir Íslands, staðir sem farið var á voru:

  • Hella
  • Höfn
  • Egilstaðir
  • Drekagil við Öskju
  • Mývatn
  • Kerlingarfjöll
  • Landmannalaugar

Þess má reyndar geta að við áttum upphaflega að fara frá Mývatni um Sprengisand og gista í Nýjadal en þar sem Sprengisandur var enn lokaður þegar við áttum að fara yfir hann var ákveðið að fara frekar Kjöl.

Merkilegt hvað manni léttir við að fara svona alvöru ferð eftir þessar fáu fyllerísferðir sem ég hef verið að taka. Líka svo gaman að sjá landið sitt svona „snemma vors“ ef svo mætti að orði komast, en þá á ég aðallega við um hálendið.

Svo er næst ferð eftir örfáa daga svo ég get hlakkað til þess að fara strax aftur upp í Kerlingafjöll. Mér finnst ég vera svo velkominn þangað í hvert skipti og því hef ég þau í toppsæti 5 uppáhalds staða minna á landinu enn sem komið er.