Category Archives: Almennt
Gleðilegt nýtt ár
Hatur á VEVO
Hvað er VEVO ? Ef þú veist það ekki þá er stutta útskýringin sú að þetta er hliðarþjónusta hjá YouTube sem er einungis með myndbönd, en ekki efni frá notendum vefsins.
En af hverju hata ég þessa síðu spyrðu þig ? Jú, út af því að það er endalaust einhverjar auglýsingar á YouTube sem eru að auglýsa hitt og þetta nýtt mainstream vídeó frá enn einni „stjörnunni“ sem er að gera allt vitlaust úti í hinni landi hinna heimsku og of feitu, lesist: Bandaríkjunum…
En ef þú svo vogar þér að smella á þetta en býrð á öðrum stað en í Kanada eða hinu mikla ríki hamborgarans þá færðu villuskilaboð um að þetta sé bara í boði þar ? Hví er þá verið að spamma mann með auglýsingu ef maður getur ekki einu sinni skoðað efnið ? Ekki að ég hafi nokkurn áhuga á því undir eðlilegum kringumstæðum, en þetta er samt mjög óeðlilegt að mínu mati.
Í dag sá ég enn eina auglýsinguna og ákvað upp á djókið að sýna hvað ég á við með myndum.. afraksturinn má sjá hér að neðan..
Hér er auglýsingin sem maður lendir oft í því að klikka á þegar maður er að nota hnappana á spilaranum, ég lendi allavega ítrekað í því sjálfur..
Og hér er það sem birtist í nýjum tab’a eða glugga eftir því hvernig vafrinn hjá þér er stilltur..
Annars rakst ég á merkilega frétt áðan á MBL.is sem er svo sem ekki frá sögu færandi ef það væri ekki það hvað stendur á bolnum hjá kauða..
My Lucky T-Shirt (hlekkur)
Ætli hann hafi mætt í honum í réttarsalinn ?
Í tilefni af 40 ára afmæli Bigga
Þá var ákváðu börnin að skella saman smá vídeó kveðju til hans, við frúin bættum aðeins við það og endanlega útkoman var þessi:
Gaman að hafa gaman af hlutunum ;)
Gott veður =D
Svona var veðrið hérna í gær =D



