Hér er það í dag, spurning hvað hverjum finnst. Læt bakgrunninn fylgja með í leiðinni líka.
Hér er svo bakgrunnurinn sem ég nota, vann þetta úr yfir 60MP mynd sem mér áskotnaðist í dag.
Yes.. I has Snow Leopard! Er að dást að honum og fara yfir allt og ekkert sem er nýtt. Verð að játa það að ég sé ekki þessa þvílíku hraðaaukningu sem fólk er að tala um, ég sé að sjálfsögðu mun, en ekkert í líkingu við það sem fólk er að tala um hjá sér.
Lenti að vísu í því áðan að vélin fraus, en ég tel það sé vegna of gamals forrits sem ég var að nota, eflaust ekki SL compatible..
Annars er ég að melta hvað ég eigi að einbeita mér að varðandi það sem ég hef verið að gera hingað til sjálfur og ég hef nokkra valmöguleika, þám:
Ef einhver lesandi hérna er með aðra hugmynd en ég hef listað hér að ofan, þá væru öll komment vel þegin varðandi þessa pælingu, ef mér dettur meira í hug sjálfur gæti vel verið að ég breyti færslunni, who knows..
Ákvað að henda hingað inn fyrir þá sem nota Mac, tveimur Widget’um sem ég fann þegar ég var að blaða í gegnum maclanti spjallborðið. Annarsvegar er það Gengjan sem er tól til að birta gengið á nokkrum gjaldmiðlum, svo er það Kórónan sem er umreiknir til að reikna úr/í íslenskar krónur úr öðrum gjaldmiðlum.
Hér að neðan má sjá mynd af gripunum.
Var að blaða í gegnum Maclantic spjallborðið núna rétt áðan og rakst á þennan snilldarlega þráð þar um hvernig KarlG væri búinn að koma flestum íslensku netvörpunum fyrir í xml skjali sem iTunes les sem podCast, en er þó í rauninni að stream’a vefvarpinu frá viðkomandi útvarpsstöð.
Ég vil taka það fram að KarlG á allan heiðurinn skilið fyrir þetta, þetta er ekkert tengt mér, ég er einungis að dreifa boðskapnum ;)
Þetta er í raun 4 þrepa aðgerð og er sem hér segir:
1. Ef þú ert á Mac vél þarftu að setja inn Flip4Mac frá Microsoft
2. Smella svo á þennan hlekk og láta iTunes opna, við það stofnast nýtt podCast í iTunes sem ber nafnið „Útvarpið“ (sjá myndir 1 og 2).
3. Tvísmella á „Útvarpið“ og smella síðan á „Get All“ hnappinn sem birtist efst á skjánnum (sjá mynd 3).
4. Tvísmella á viðeigandi stöð og njóta útvarpsins!
Flóknara er það ekki =D Ætla að vona að margir nýti sér þetta og þeir Mac notendur sem lesa bloggið mitt en eru ekki skráðir meðlimir á Maclantic, þá hef ég bara eitt að segja: Skráðu þig! Marg borgar sig ;)
Jæja.. þá er fyrsta Mac bilunin búin að banka á dyrnar hjá mér.. Hélt ég myndi fá lengri frest en þetta þar til eitthvað klikkaði í fína iMac’anum okkar..
Diskurinn er farinn, allavega spinnar hann sér aftur og aftur upp, en kerfið ræsir sig ekki.. Sit hérna í MacBook’inni og stari á skjáinn á iMac’inum, ekkert gerist.. byrjar að boota af ný uppsettu kerfi, Apple logo’ið birtist og loading hringurinn.. Svo fade’ar það út, músin birtist og bakgrunnurinn verður aðeins dekkri grár, en eftir það.. NADA!
Hringdi í Apple IMC áðan og lýsti vandanum fyrir kauða á verkstæðinu, hann var sammála mér með að þetta væri diskurinn og sagði mér að renna bara með vélina til þeirra.
En þá kemur hið „óvænta“.. Hvað haldiði að þeir gefi upp sem tíma fyrir þessa viðgerð? 10-16 VIRKA daga !
Ég er hreinlega í sjokki eftir að hafa heyrt þetta, það er ekki eins og það þurfi að smíða nýjan disk í vélina!
Þetta er klárlega það sem er verst við að eiga Mac vél, seinagangur í viðgerðum ef þær koma upp á annað borð.
Don’t get me wrong, ég ELSKA bæði iMac’inn og MacBook’ina… en bara af því að viðgerðir taka þetta langan tíma, þá er maður soldið hræddur við að eiga vél sem maður missir kannski frá sér í tæpan mánuð eða meira ef það þarf að gera við hana! Ansi hræddur um að verkstæði sem eru með PC vélar taka ekki svona mikinn tíma í viðgerðir..
Ég myndi nú græja þetta sjálfur, ef þetta væri ekki svona compact allt, var að skoða bæklinga á vefnum hjá Apple í dag og ákvað að þetta yrði að fara í gegnum ábyrgðina.. Er ekki að fara að rífa vélina í sundur sjálfur og bjóða hættunni heim að brjóta/skemma eitthvað með „frumstæðum“ verkfærum, hehehe..
En já, ég er tognaður í bakinu AFTUR! En að vísu á öðrum stað núna, var fyrir miðju baki þarna um daginn, en nú er það mjóhryggurinn.. óttarlega gaman að vera dópaður af Forte + einhverjum bólgueyðandi töflum.
En já, spurning um að fara að gera eitthvað með viti.. forrita eða eitthvað!