Merkileg breyting

Já, annað get ég varla sagt..

Ég byrjaði mitt linux líf á að nota Gentoo fyrir ó-svo mörgum árum síðan, Gentoo var ekki komið með almennilegt útgáfu númer þegar ég fiktaði fyrst í því, ég hafði jú fiktað við FreeBSD fyrir það og örlítið í Red Hat (man ekki hvaða útgáfu þó) en það var ekkert af ráði. Eftir að ég gafst loksins upp á Gentoo og því endalausa compile’i sem því fylgir fór ég í Debian, þar sem ég var í þó nokkurn tíma. En þegar mér fór að leiðast hve lengi forrit og stuðningur var að koma inn í kerfið ákvað ég að prófa annað kerfi byggt á Debian, nánar tiltekið Ubuntu.

Þetta var þegar Ubuntu var í útgáfu 8.x (2008) og ég hélst lengi vel í því kerfi.. Það var ekki fyrr en þeir kynntu sinn eigin gluggastjóra (DM) sem þeir kalla Unity að ég fór að fá bakþanka þar sem ég er mikill aðdáandi Gnome 3. Canonical, fyrirtækið sem stendur á bakvið Ubuntu, gaf það út að þeir ætluðu ekki að styðja Gnome 3 þar sem þeirra stjóri Unity notar lib og annað eins frá Gnome 2. Ef þeir ættu að styðja Gnome 3 (Gnome Shell) þá myndu þeir brjóta kerfið.

Þegar þarna kemur að er árið orðið 2011 og Ubuntu 11.04 var tiltörulega ný komið út, ég fór að huga að nýju kerfi til að taka við af Ubuntu.
Sem gamall nörri með skrítinn smekk hafði ég prófað hin ýmsu kerfi og varla litist á neitt. RPM kerfin svokölluðu, þám. CentOS, Fedora og Red Hat, voru kerfi sem ég hafði prófað með vissu millibili en mér líkaði aldrei við þau á neinn máta. Fedora hafði ég prófað td. útgáfur 13 og 14 sem mér þóttu bara hreint út sagt hræðilegar. Ég er ekkert viss í dag hvað það var sem lét mig hafa þessa skoðun á kerfinu en mig grunar sterklega að hatur mitt á yum (pakkastjóra Fedora) hafi ráðið þar nokkuð miklu.

Þegar ég var alveg að gefast upp á Ubuntu nú síðla sumar ákvað ég að prófa Fedora 15, þar sem ég sá að þeir voru þeir fyrstu sem notuðu Gnome 3 í útgáfu af sinni Linux útgáfu. Ég setti það upp og viti menn, mér leið strax vel.. Kerfið sem ég hafði séð í den var ekkert líkt því sem ég sá fyrir framan mig. Það sem ég sá þarna var fágað og slípað, mér leið strax æðislega og ég fann strax hve mikið létti á mér að nota þessa vél, bara við það að skipta úr Ubuntu í Fedora. Ætli ég geti ekki lýst þessu best með að bera þessa reynslu saman við það þegar ég fór úr Windows vinnuumhverfinu með CS3/4 pakkana og yfir í MacOS X. Munurinn þar var svakalegur, allt í einu var ekkert fyrir manni og manni leið vel, vefhönnun hjá mér stökk upp á við í gæðum og hugmyndaflugið fékk loksins lausan tauminn.

Í Linux hefur mér alltaf liðið vel, ég er öðruvísi, ég hef aldrei neitað því ;) En núna finnst mér ég loksins eiga heimili með Fedora, þetta er svolítið skrítið að útskýra en þeir vita hvað ég á við sem hafa upplifað þetta sama. Nördinn í mér hefur í nægu að fikta og skoða meðan hinn parturinn af mér, þú veist.. þessi sem vill að allt virki óháð því hvernig skapi maður er í, er í skýjunum. Í Fedora virkar td. þráðlausa kortið mitt án þess að vera með derring, í Ubuntu var það svaðaleg flækja að koma því í gang hvað þá að fá það til að virka sem skyldi. Meira að segja ATi kortið í fartölvunni hjá mér virkar betur á Fedora en á Ubuntu og þá er nú mikið sagt. Ubuntu var nú oftast nær mjög duglegt við að koma ATi og NVidia driverum inn en núna finnst mér Fedora vera með mikla yfirburði yfir Ubuntu.

Ég er ekki að segja að hver sem er eigi að vera með Fedora, Ubuntu, Gentoo eða Windows ef út í það er farið.. ég er ekki einn af þessum guttum sem segir að þú verðir þetta eða verðir hitt.. Ég segi bara, ef þú þorir, vilt og getur, þá er um að gera að fikta, prófa og kynnast, því án þess að skoða í kring um þig veistu aldrei hvort þú sért heima..

Feginn, fegnari, fegnastur!

Nú í síðustu viku hrundi hjá mér þjónninn sem ma. hýsir þennan vef, þeas. diskurinn sem innihélt MySQL grunnana og póstinn var allt í einu hlaðinn bad sectors, virkaði fínt meðan vélin var í gangi en sökum þess að það þurfti að slökkva á vélinni um stund þá þurrkaðist index’inn út á disknum.

Svo til að toppa allt þá virkaði ekki afritunarscriptan sem ég forritaði og testaði ítrekað í VMWare vél hjá mér, þannig að ég sat eftir með sárt ennið að reyna að redda gögnunum af þessum handónýta disk.. 184 bad sector’ar voru á blá byrjun þeirrar disksneiðar sem gögnin voru á og því var indexinn og eitthvað af journal inode’unum farnar.. Virkaði ekkert að reyna að mount’a né keyra fsck á diskinn, ekki hægt að laga sökum þess að endalausar I/O villu meldingar birtust og forrit eftir forrit dó við að reyna að bjarga gögnunum.

Ég reyndi dd ofl forrit.. ég var búin að láta vélina malla með ýmsan hugbúnað í 3 sólarhringa, þar til ég gafst upp og var komin á Google enn eina ferðina og viti menn, þar rakst ég á litla færslu í bloggi hjá einhverjum austurlandabúa sem skrifaði um lítið tól sem hann hefði notað (eða skrifað?) sem héti dd_rescue. Það væri byggt á dd en það hreinlega hoppaði yfir slæmu partana, en einbeitti sér ekki að þeim líkt og önnur forrit. Ég prófaði að keyra þetta og dumpa output’inu í dump.img skrá og viti menn, 3 klst síðar átti ég 180GB IMG skjal sem var nákvæmt afrit af disknum, nema þetta afrit gat ég keyrt fsck á og mountað svo via loopback og sótt öll gögnin óskemmd!

Moral of the story:

  1. Alltaf tryggja að backup sé í gangi
  2. dd_rescue er ÓMISSANDI tól!

Vona að þetta útskýri blackout’ið hérna og á mörgum öðrum síðum ;) Ég er að vinna í að reyna að koma öllu upp aftur.

Fikt í .lftprc

Ákvað aðeins að fikta í .lftprc skjalinu hjá mér til að auðvelda daglega notkun á þeim annars fína ftp client fyrir *nix kerfi. Vildi deila með ykkur endanlegri útkomu.

Hér er .lftprc skjalið mitt sem ég nota daglega.

# ArB’s .lftprc
# placement: ~/.lftprc

# global settings
debug 3
set cmd:prompt „\[\e[1;37m\]lftp\] \[\e[01;32m\]\]\u\@\h \[\e[01;34m\]\]\\W $ \[\e[00m\]\]“
set cmd:default-title „lftp \h:\w“
set cmd:csh-history on
set mirror:order ‘*.sfv * */’

# speed limit due to ADSL crap
set net:limit-rate 0:128000
# unlimited download : 125kB/s upload

# my aliases
alias qdl „queue mirror“
alias qul „queue mirror -R“
alias qg „queue start“
alias qs „queue stop“
alias wip „site wipe -r“
alias ul „mirror -R“
alias dl „mirror“

Þetta er ég að nota núna og það virkar vel, varðandi hraða takmörkunina þarna, taktu bara þá tölu í kB/s (kílóbæti) sem þú veist að línan þín ber án þess að það laggi allt í stöppu og margfaldaðu með 1024 til að fá út gildið sem þarf að fara í config’inn.

Helgin komin

En ég fæ enga afslöppun ;D Verð í skyndihjálparnámskeiði alla helgina í tengslum við meiraprófið mitt, svo á þriðjudaginn byrja ég í bóklega náminu „stór ökutæki“ og „bifreiðartækni 2″, shit hvað ég hlakka mikið til =D

Annars rakst ég á nokk skemmtilega frétt áðan á /. sem talar um hvernig skiptingin er á kóða sem er notaður í Linux kjarnann, þeas. hvaðan kemur sá kóði ? Jú.. 75% af þeim kóða sem var sendur inn á bilinu 24 desember 2008 til 10 janúar 2010 var skrifaður af fólki sem er borgað fyrir það af sínu fyrirtæki, þám. eru fyrirtæki á við Intel, IBM, Red Hat og Novell. Aðeins 18% af þeim kóða sem sendur var inn á þessum tíma var ekki merktur neinum fyrirtækjum.

Hvað sýnir þetta okkur? Jú, fyrirtæki eru farin að eyða meiri tíma og meiri pening í að vinna við Linux og það hjálpar okkur öllum. Þetta þýðir að við fáum [líklega] fyrr stuðning við nýjustu tækin og innvolsið í vélum.

Mér finnst þetta skref í rétta átt =D

Smá dútl

Var að leika mér að tengja gamlan CRT skjá við linux skráarþjónin undir borði, nota svo Synergy til að vinna á þá vél með lyklaborðinu og músinni sem eru tengd iMac’anum. Eins og sést á meðfylgjandi mynd staðsetti ég þennan CRT skjá á toppnum á kommóðunni sem er bakvið iMac’inn hjá mér og því get ég meðal annars horft á vídeó og hlustað á tónlist í þessari vél núna.

Virkar óttarlega nice og gefur mér alveg eitt nördastig í kladdann að mínu mati ;D

Annars er það í fréttum að Kristín er byrjuð í fjarnámi í FÁ, er að hjálpa henni með 2 stærðfræðiáfanga á þessari önn. Svo er ég skráður og byrjaður í C og D meiraprófsnámi. Verð komin með réttindi um miðjan/lok febrúar.

Litli strákurinn í mér hoppar af kæti og tilhlökkun með að fara í verklegu tímana, held barasta að ég hafi ekki verið svona slæmur frá því ég var 5-6 ára gamall og beið eftir því að síðasti jólasveinninn kæmi með pakkann sem ég fékk í skóinn á aðfangadag ;D

Jólin og áramótin voru góð hjá okkur að undanskildum mjög erfiðum dögum bæði fyrir jól og milli jóla og nýárs. Fengum fregnir af því um miðjan mánuð að Óli vinur okkar væri látinn, aðeins 24 ára að aldri. Þetta var skellur sem snerti okkur gífurlega og tók alltof mikið á. Við vorum hérna fyrstu dagana eins og vofur. Svo urðum við að taka á okkur tak og halda jólin fyrir börnin og okkur sjálf.

Svo milli jóla og nýárs var jarðaförin. Ég var einn af 8 sem bar kistuna úr kirkjunni og í bílinn. Við stóðum svo vörð um hann meðan allir komu og kvöddu hann.

Núna eftir áramót er maður búinn að vera misjafn eftir hvaða dagur er, sumir dagar eru góðir, aðrir slæmir. Hverju því er að kenna um er óttarlega breytilegt, held ég sé bara hægt og rólega að missa vitið sökum þess að hafa verið atvinnulaus svona lengi, sama hvað maður sækir um, þá fær maður ekkert .. sama hvað ég reyni að gera, það gerist ekkert =/

En.. bjartari tímar framundan vona ég! Ég er allavega að taka meirapróf, þannig að ég eyk allavega líkurnar á því að fá starf ;)

Svo tókst mér að laga leiðindar vandamál sem ég átti við WYSIWYG editorinn í WordPress.. Málið er að ritillinn í WordPress er tvennskonar, annarsvegar svo kallaður WYSIWYG (en. What You See Is What You Get, einnig þekktur sem Visual editor) ritill og hinsvegar plain text (HTML) viðmótið þar sem þú sérð allan kóða og slíkt. En allavega, þegar ég reyndi að nota Visual ritilinn þá tókst mér aldrei að vista, hann hlóðst ekki inn og ýmislegt rugl. Svo ákvað ég að kíkja í dag aðeins á þetta með hjálp FireBug og þá sá ég einstaklega skrítna villu og eftir að hafa vafrað í töluverða stund á Google var ég engu nær.

Var búinn að testa að setja nýtt wp-includes inn hjá mér en það gerði lítið, því næst testaði ég að setja wp-admin möppuna inn upp á nýtt en það var sama sagan. Á endanum fór ég að kíkja á hin og þessi plugin sem ég er með virk og viti menn, eitt þeirra var að valda því að jQuery var ekki að virka sem skyldi á síðunni, þar sem þetta er plugin sem ég hef lítið notað og get vel lifað án, ákvað ég að taka það bara út og eyða.

Svo í lokin er tvennt sem stendur uppúr sem mig langar að minnast á =) Í fyrsta lagi þá fórum við loksins á Avatar núna um helgina og guð minn góður! Ég vildi varla fara úr bíó’inu! Shit hvað þessi verður versluð á BluRay þegar hún loksins kemur á slíkt! Myndin var hreinn unaður að horfa á og djöfulli lifði maður sig inn í myndina, ég get svo svarið það að hjartað fór allavega tvívegis í brækurnar hjá mér útaf lofthræðslu í mér varðandi tvö atriði í myndinni.. það hef ég aldrei á ævinni upplifað áður við að horfa á bíómynd!

Seinna atriðið er að við ákváðum okkur að leyfa okkur þann lúxus að nota peninga sem ég fékk í afmælisgjöf til að versla okkur Playstation 3 vél. Þar sem Biggi mágur er sífellt á ferðinni til og frá landinu þá erum við búin að biðja hann um að versla eitt stykki fyrir okkur í fríhöfninni þegar hann kemur næst til landsins, sem verður um miðjan næsta mánuð. Þannig að, eftir 2-3 vikur verðum við hreyknir eigendur PS3 vélar =) Shit hvað ég á erfitt með að bíða samt, hlakkar til að geta horft á 720 og kannski 1080 (ef TV’ið dekkar það) myndefni í vélinni.. BluRay myndir og slíkt..

Annars held ég að ég láti þetta duga í bili, nokkuð stór og góð færsla so far. Skil við ykkur með smá preview’i úr verkefni aldarinnar hjá mér hér að ofan ;D