Jæja, þá er ég búin að setja upp issue tracker til að koma ferlinu í gang aftur með WPis viðbótina mína. Sem er stendur hún í útgáfu 1.0.5 og gerir það sem hún átti upphaflega að gera, en ég stefni á að vera búin að setja inn einhverjar nýjungar fram að útgáfu 1.1.
Þar á meðal má minnst á:
Umturna útlitinu á bakendanum, hafa viðbótina undir sínum eigin header í stað þess að vera undir „Stillingar / Settings“.
Bjóða upp á litla auglýsingu á fæti síðunnar vilji fólk það
Aðgreina fréttirnar og uppfærslu þýðingar í sitt hvora undirsíðuna
Bæta við leið fyrir fólk til að hafa samband við þýðingarhópin með uppástungur, vandamál eða almenn skilaboð.
Bjóða upp á að geta þýtt strengi og senda þá inn til hópsins.
Þetta er ekki tæmandi listi, það mun eflaust eitthvað breytast við þetta, sumt detta út, annað bætast við. En þarna sjáiði hvað ég er að hugsa með þessu.
Svo má minnast á það að það er komin nýrri útgáfa af þýðingunni, sem er 3.3 samhæfð, þannig að þeir sem eiga eftir að uppfæra eru hvattir til þess að smella á uppfærsluhnappinn í WPis viðbótinni.
Fréttir hér af bæ eru helstar þær að stelpan er búin að vera fárveik með háan hita núna í að verða viku. Fór til læknis fyrr í vikunni og svo upp á barnaspítala hringsins fyrr í dag, eigum að fylgjast með henni núna um helgina og sjá hvort við fáum hana ekki til að drekka og borða meira þá þarf að leggja hana hinn á spítala til að fá í æð.. Ekkert svakalega hressandi staða..
Hún er búin að léttast um 5kg á innan við viku, það ætti að segja hversu uppþornuð hún er.. =/ Vonandi tekur þetta enda og hún fær lyst aftur.. rosalega erfitt að horfa upp á börnin sín í svona ástandi =/
Annars sér fólk kannski að ég hef verið að vinna við að rækta nördann í mér, búin vera að fiffa þemuna töluvert, setti svo upp Fluency Admin aftur á bakendanum, svakalegur munur á að sjá þetta núna og hvernig var.. Fluency Admin er svo í þokkabót komin með sína eigin stillingasíðu sem gerir manni kleift að breyta um lit á þemunni og hinum og þessum atriðum =)
Svo breytir viðbótin líka innskráningarglugganum sem birtist á stjórnborðinu. Svo getur þú séð á þessum tveim myndum hér að ég gat mjög einfaldlega sett mitt eigið logo á bæði innskráninguna og efst á valmyndina í stjórnborðinu.
Annars hef ég verið að vinna eins og ég get í þýðingunni minni, það bara virðast bætast svo margir strengir við í hvert skipti sem ég uppfæri skjalið =P Ég er komin með 82% af þýðingunni og á eftir 569 strengi, ég er að eyða dauðum stundum mínum í þetta, td. í matarhléum, frítíma á kvöldin og slíkt, en það lítur aldrei út fyrir að ég nái að saxa neitt á þetta =P
Þannig að ég auglýsi enn og aftur eftir fólki sem vill taka þátt í þýðingunni. Ef þú telur þig geta aðstoðað á einhvern máta er ég með öll tól sem þarf á vef, eina sem þarf að gera er að innskrá sig þar með notanda sem ég stofna og þá getur þú unnið í þýðingunni á þeim vef. Ég fer að vísu yfir allar þýðingar til að passa að allt samhæfist eldri þýddum strengjum í þýðingunni, en fólk fær fullt kredit fyrir sína vinnu! =)
Þannig að, viljirðu hjálpa, máttu endilega senda mér línu. Sama þó það sé bara einn og einn strengur, þá er það því mun minna fyrir einn mann að þýða ;)
Í dag hef ég haft það óttarlega náðugt hérna einn heima. Frúin og börn hafa verið upp á Flúðum síðan á föstudaginn, en þar sem ég var að keyra óvissuferð SS í gær, annað árið í röð I might add, þá var ég í bænum og ekki með fjölskyldunni upp á Flúðum.
Það sem af er degi hef ég verið að nördast í hinu og þessu, farið yfir tímana mína í þessum mánuði, skrifað niður hina og þessar hugmyndir af verkefnum sem mig langar að dúlla mér í núna í vetur ásamt öðru. Ég er líka búinn að komast að því að Google Chrome er orðinn 100% Lion samhæfður, styður fullscreen dótið sem var kynnt í Lion, en þar að auki er annað auka dót sem ég hef ekki séð í öðru forriti. Þegar þú hefur opnað Chrome í fullscreen þá er annað icon í hægra horninu uppi, lítur út eins og tjöld fyrir framan bíótjald / leikhústjöld. Þegar maður smellir á þann hnapp þá hverfur vafrinn algerlega, ekkert af UI’inu sem fylgir Chrome sést. Bara síðan sem þú ert með opna. Til að birta tool- og tab-barinn aftur þá þarf bara að fara með músina einhversstaðar uppi í efri kantinn og þá birtist það sem drop down valmynd. Svona dót er þægilegt =D
Fyrir þá sem ekki vita hvernig þetta lítur út þá tók ég skjáskot af fullscreen takkanum í Chrome og sést á meðfylgjandi mynd. Þetta breytir rosalega hvernig maður horfir á vefinn og hin ýmsu tól sem eru í boði á netinu. Engin truflun td. að skrifa blogg færslur í WordPress ;D
Ég fæ svona löngun af og til, oftar en ég vil reyndar, með það að ég vil bæta mig í tæknidótinu.
Alls ekki misskilja mig, né þig, það er ekkert að því að bæta sig, en vandamálið er það að ég er svo óákveðinn með hvað ég eigi að nota sem aðal nördaskapinn.. Ég hef alltaf verið sæmilega góður í PHP forritun, WordPress vil ég verða betri í, mig langar að vera betri grafíker, ég vil vera ofur Linux/Unix nörd, ég hef meira að segja fengið löngun að læra betur á Windows Server kerfin. Vandamálið er sem sagt.. mig langar of mikið í of mikið.
Nú ætla ég að breyta til hinsvegar. Ég hef ákveðið að ég ætla að hætta í forritun að því leytinu til að ég mun bara dúlla mér í henni, sjálfur og fyrir sjálfan mig, heima við. Sem „aðalnörradót“ ætla ég að einblína á að læra betur á Windows kerfin og reyna að ná mér í einhverjar gráður. Með þessu ætla ég líka að reyna að ná mér í gráður í Linux, td. RHEL.
Þeir sem þekkja mig best eru núna annað hvort að lemja hausnum á sér við vegginn eða hafa hreinlega lokað vafra glugganum í þeirri trú um að þeir hafi hreinlega lesið vitlaust.. Að Axel ætli að fara í Windows nám.. en svona er þetta ;)
Ég gleymdi reyndar að taka það fram á blogginu sjálfu, þó ég hafi uppfært síðuna (um mig – ferilskrá) að ég hef hafið störf hjá Nýherja! Ég er titlaður tæknimaður og er sem stendur á þjónustuborðinu að læra á þau mörgu kerfi sem er verið að nota þar.
Það er sjaldan sem manni líður svo vel á vinnustað að manni hreinlega hlakkar til að mæta. Þannig líður mér núna =D Það er brjálæðislega mikið af hlutum sem ég er að læra á og læra um þarna núna, en þetta er bara gaman =)
Annars er bara fínt að frétta af okkur held ég, börnin komin bæði í skólann þannig að rútínan er komin í gang. Nýja starfið smell passar einmitt í hana án nokkurra breytinga þannig að það er hrikalega stór plús. Kristín er eins og hún er varðandi MS’ið. Góðir dagar og slæmir.
Við prófuðum svo í gær svolítið öðruvísi (á okkar mælikvarða), ég fékk skyndilega þá flugu í hausinn á mér að vilja sushi, sem ég hafði bara smakkað einu sinni áður og þá í glasi (vel í glasi). Þannig að við brunuðum á Nings þar sem það er sá staður sem er okkur næstur sem selur sushi, hvort það sé gott sushi eða ekki, í tengslum við aðra staði þeas, get ég ekki svarað fyrir en okkur þótti þetta bara prýðilegt. Byrjuðum bara á 6 bita laxabakka og fengum okkur kjötrétt dagsins með. Börnin borðuðu svo pylsur þar sem þau vilja ekkert svona. Það er þó víst að við ætlum að vera dugleg við að fá okkur eitthvað nýtt og helst hluti sem við höfum lokað á af einhverri ástæðum, hætta að vera teprur ;D Elmar félagi benti mér á Tokyo Sushi og ég get lofað því að eftir að hafa skoðað lauslega yfir matseðilinn þeirra, sem er að vísu bara sjáanlegur á Facebook eins og er, þá er ég svoooo að fara þangað næst. Alveg klárt. Fiski og Krabba bakkinn með 20 bitum er sjúklega flottur og girnilegur.. andsk.. ég er orðinn svangur á að skoða þetta og hugsa um =/
Jæja.. þá er maður búinn að uppfæra hjá sér úr 10.6 í 10.7, so far so good ef ég á að segja alveg satt..
Eina vesenið sem ég hef lent í fram að þessu er að UTF8 virkaði ekki sem skildi þegar ég ssh’a mig við Ubuntu þjón sem á er keyrandi screen með irssi í gangi.. Vandamálið er víst það að í /etc/ssh_config á 10.7 er ein lína sem sendir LC_* breytur áfram á Ubuntu þjóninn, trikkið er að commenta þá línu út og þá er allt í góðu =)
Breyta:
Host *
SendEnv LANG LC_*
# ForwardAgent no
Í:
Host *
# SendEnv LANG LC_*
# ForwardAgent no
Læt svo vita ef ég finn eitthvað annað sem „plagar“ mig ;D