Bara svona af því að ég er hyper af sykri og koffíni.. er á fullu að forrita ;D Smá pepp!
Category Archives: Forritun
Uppfærsla á þýðingu
Vildi benda fólki á að það er komin lítilsháttar uppfærsla á þýðinguna til að samhæfast WordPress 3.2.
Þýðinguna er hægt að nálgast með því að smella á „Uppfæra þýðingu“ hnappinn í WPis viðbótinni.
Annars er ég að leita að virkum þýðendum sem vilja leggja hönd á plóg og koma hlutfalli þýdda strengja í 100% með mér ;D Þannig að ef þú hefur áhuga á að hjálpa til mæli ég eindregið að þú hafir samband við mig sem fyrst ;D
3G pungur
Það er nú ekki oft sem ég hef talað um Windows, hvað þá að skrifa einhvern how-to fyrir það, en allt er einhvern tímann fyrst.
Ég er með nýlega vél með Windows 7 á og ég ákvað að leyfa því að vera fyrst það var nú löglegt og fylgdi vélinni, so far er ekkert búið að bögga mig að ráði nema þetta klassíska Windows vesen í tengslum við vírusvarnir og annað eins til að vernda það.
En svo kom að því að ég myndi lenda á einhverjum vegg, málið er að ég er með 3G pung frá Vodafone, framleiddan af Huawei. Hingað til hef ég ekki lentí neinu veseni enda notað hann á OSX og Linux og þar hafði stuðningur við punginn verið „innbyggt“ í þeim tólum sem komu með kerfinu.. Windows XP hinsvegar hafið ég testað einu sinni á pungnum og tókst það með hugbúnaðinum sem fylgdi með á innbyggða FLASH kubbnum í 3G pungnum, en eftir smá vesen samt.
Hvað með það, á Windows 7 gengur fínt að setja upp hugbúnaðinn sem fylgir á innbyggða minninu á pungnum en sá hugbúnaður vill hinsvegar ekki ræsa sig, skiljanlega því þetta var upphaflega forritað fyrir soldið eldra kerfi (XP), svo ég ákvað að fara á netið og finna mér nýrri útgáfu, en það var ögn „flókið“ þar sem hugbúnaðurinn heitir allt annað í dag en þá, en á endanum rambaði ég á rétta undirsíðu hjá Vodafone úti og sótti pakkann.
Þar virkaði allt fínt nema þegar kom að því að setja upp 3G punginn, þá fail’ar Windows 7 á Huawei Modem partinum, allt annað flýgur inn.
Eftir mikla leit á Google fann ég eina litla síðu sem hafði lausnina á þessu vandamáli, ég er nú ekki það sleipur í þetta tæknilegu dóti í tengslum við Windows 7, en af því sem ég næ þá held ég að vandamálið liggji í því að forritið og driverinn eru skrifaðir fyrir 32bit kerfi en ég er sjálfur að keyra 64bit. Installerinn fyrir Vodafone Mobile Connect setur allt rétt upp í raun en það varð að breyta/bæta við neðanverðri breytu til að Win7 næði að hlaða inn driverinn fyrir módem partinn af 3G pungnum.
Í réttri röð er þetta það sem þarf að gera til að fá allt í gang:
- Fara í Start og ræsa í valmyndinni/leitarreitnum: „regedit„
- Finna þar: HKEY_LOCAL_MACHINE\ SYSTEM\ CurrentControlSet\ Control\ Class\ {4D36E96D-E325-11CE-BFC1-08002BE10318}
- Finna breytuna „Installer32„, ef hún er til þarf að tryggja að gildi hennar sé: „mdminst.dll,ClassInstall32„, ef að breytan er ekki til þá þarf að stofna hana og setja gildin inn í hana.
- Vista og loka „regedit„, opna „Device Manager“ og finna þar módemið, það ætti að vera undir Other Devices eða álíka, birtist á þeim stað sem „vandamálatæki“ eru listuð. Þar þarf að uninstall’a því device’i og skanna svo eftir breytingum og leyfa vélinni að setja það sjálfkrafa upp.
Þegar þetta er allt gengið í gegn þá flaug allt inn hjá mér og ég gat strax byrjað að nota punginn. Ég vona að einhver geti nýtt sér þessar upplýsingar og ekki væri verra ef Vodafone sjálfir vissu af þessu ;) *hóst*
Upprisa
Ég fékk skemmtileg skilaboð á Twitter fyrr í kvöld sem bentu mér á að WordPress.is væri risin aftur. Ég man að ég fór ítrekað inn á þessa síðu fyrir langa löngu þegar maður var að reyna að safna fólki fyrst í að þýða WordPress, en sá vefur þá var sama sem ekkert uppfærður. Mig minnir meira að segja að nýjasta fréttin á vefnum þá hafi verið yfir árs eða tveggja ára gömul.
Þannig að þetta eru sannarlega góðar fréttir að heyra að það sé verið að endurvekja það samfélag sem ég veit að er til staðar hér á landi.
Það sem ég er samt einna ánægðastur með er að sjá hvernig hann Arnór talar um mig og viðbótina mína WPis.

Núna áðan þegar ég innskráði mig á síðuna mína sá ég hinsvegar svolítið sem mér brá við að sjá.. Heimsóknirnar sem ég hef fengið á vefinn í dag (og ég tengi við opnun wordpress.is) eru frekar margar. Ekki að ég sé að kvarta, langt því frá, en fjöldi heimsókna er það hár að ég varð að sýna ykkur það sem ég sá þegar ég opnaði bakendann hjá mér.
Eins og sést hér á myndinni til hægri þá er þetta ROSA stökk í heimsóknum ef maður skoðar þessa rúmu viku sem myndin spannar.
Þetta er að sjálfsögðu ekkert nema gott og þetta vonandi þýðir að það verk sem ég stend á bakvið hér á vefnum hjá mér nái til fleirri aðila en áður. Og því fleirri sem ég get aðstoðað með td. WPis viðbótinni því betra =)
Annars er ég opin fyrir hugmyndum ef það er eitthvað sem fólki dettur í hug varðandi að bæta viðbótina hjá mér eða eitthvað annað sem hægt væri að græja fyrir WordPress, hvort sem er þá viðbót eða eitthvað annað.
Smá auglýsing ;)
Mig langaði bara að vekja athygli á því að núna er WPis viðbótin komin í gagnagrunn WordPress yfir viðbætur, bæði á síðunni þeirra og í leitarvél innan allra uppsettra WordPress vefkerfa.
Þú getur prófað að leita að viðbótinni með því að nota þó nokkur leitarorð, en meðal þeirra eru Ísland, íslenska og wpis.
Svo vildi ég koma því á framfæri að þýðingarvinnan er enn í gangi, það eru 448 strengir enn eftir óþýddir og ég reyni að vinna í þessu alltaf á hverjum degi. Enn sem komið er þá virkar allt fínt en ef þú verður var/vör við streng sem birtist ekki á bakenda WordPress láttu mig endilega vita til að ég geti lagað þýðinguna eftir því.
Svo ef þú vilt taka þátt í þýðingunni væri það kærlega velkomið! Hafðu samband við mig og við græjum aðgang fyrir þig að kerfinu sem við notum.
