Ekki minn, heldur þessi sjálftitlaði „vefur fyrir drottningar„, bleikt.is.
Ég er gjörsamlega kominn með upp í kok af því hversu margir eru að skella hlekkjum á þennan vef á facebook í gríð og erg, en ég vandi mig á það að líta algerlega framhjá þeim, ef ég sé að hlekkurinn tengist bleikt.is þá lít ég strax á næstu færslu fyrir ofan/neðan án þess að pæla meira í því..
Núna áðan sá ég samt titil á hlekk sem ég varð að tékka á, fannst þetta bara eitthvað svo absúrd að ég varð að sjá hvernig í fjandanum væri verið að fjalla um málefnið. Þið eruð kannski búin að sjá myndina hérna við hliðina, en titilinn er eins og sést „Geimkynlíf er ekki fyrir alla – 3 atriði„.
Ég smellti því á hlekkinn og að mínu mati mengaði heila minn með að lesa alla færsluna. Það sem vekur mesta furðu hjá mér er atriði 2, þrátt fyrir að öll greinin (ef grein skyldi kalla) sé tóm þvæla.. Manni finnst þetta vera skrifað bara til að skrifa eitthvað..
Hér er skjáskot af greininni, ef ske skyldi að henni yrði nú fargað af vefnum eða breytt.. En takið eftir atriði 2 eins og áður sagði.. Þar er talað um hljóðleysi í geimnum, sem er náttúrulega algerlega rétt, nema ef þú hugsar aðeins betur um þetta.. Hvernig getur haft samfarir í geimnum? Jú, með því að vera í lokuðu rými sem í er þrýstingur, loft til að anda og slíkt, td. í alþjóðlegu geimstöðinni eða í geimfari.. Þar sem það er nú loft þar inni til að þú látir ekki lífið meðan á þessu stendur, þá getur hljóð borist með því lofti og því hver sem er heyrt í þér innan þess rýmis.. Að tala um hljóðleysi í geimnum en ekki íhuga það að það hljóðleysi á sér ekki stað í ma. geimförum og geimstöðinni, er bara steypa að mínu mati.
Ég veit ekki af hverju ég er að rífast um þetta, en þetta bara stangast svo á við hið svo kallaða „common sense“ að það hálfa væri nóg..
Hér eftir mun ég algerlega sniðganga *alla* hlekki sem beina á vefinn, óháð því hvað stendur í þeim.. Svo mikið er víst!