Smá vídeó

Ég verð eiginlega að deila með ykkur tveimur trailer’um sem ég á hérna, á reyndar báðar myndirnar líka, en það er annað mál.
Málið er að þetta eru bæði myndir sem ég mæli með við alla að horfa á þó það sé ekki nema einu sinni. Þær eru báðar frekar gamlar og ekki ætlaðar fyrir áhorfs einmanna karlmanna, en ef það er par sem um ræðir þá er það bara gott ;)

Get the Flash Player to see this content.

Fyrri myndin heitir Buying the cow og er gamansöm ástarvella með smá karlmennsku flippi í gangi. Fjallar um David (Jerry O’Connell) sem er búinn að vera í fínu sambandi með kærustu sinni en vill ekki binda sig í hjónaband þar sem honum finnst það ekki vera rétt. Kærastan vill giftingu/skref upp á við, en hann ekki. Fyrst svo er ákveður hún að fara yfir þver Bandaríkin til að vinna að einu verkefni þar og gefa honum tækifæri til að hugsa sinn gang. Það sem hrindir þessu af stað er að besti vinur Davids kynnist konu sem hann vill giftast frá fyrsta degi.

Myndin er óttarlega vitlaus, margir brandararnir ofnotaðir úr öðrum myndum og allt það. En þetta er fínasti máti að drepa smá tíma og skemmta sér í leiðinni.

Get the Flash Player to see this content.

Seinni myndin heitir Head over heels og fjallar um Amöndu sem kemur í byrjun myndar að kærastanum í bælinu (hennar) með annari konu. Hún ákveður því að flytja út og byrja upp á nýtt á „markaðinum“. Hún sækir um sem meðleigjandi að íbúð sem hún sér auglýsta en það vill ekki betur til en að hinir meðleigjendurnir fjórir eru allar módel.

Þetta er alger stelpumynd, en strákar geta líka alveg hlegið af henni. Þó svo að Freddie Prinze Jr. leiki í henni eru þó allavega 5 (oftast) léttklæddar dömur þarna sem er alveg þess virði að horfa á ;)

Svo langaði mig aðeins að rabba um Britains Got Talent þættina sem eru að tröllríða öllu á facebook, hlekkjasíðum og msn.. Það eru allir að tala um hvað Susan Boyle hafi komið sér á óvart og allt það. Ég tek svossum alveg undir það, en mér brá meira að heyra í þessum pjakk hér fyrir neðan. 12 ára gamall og heitir Shaheen Jafargholi.

Get the Flash Player to see this content.

Ég geri mér annars grein fyrir því að ég er að missa mig í vídeófærslum hérna.. en það er bara af hinu góða er það ekki ? ;)

Börn

Mér finnst það alveg æðislegt hvað börnin geta gert, sagt og látið frá sér..

Tengdó er búin að vera hjá okkur í rúma viku núna og börnin taka alltaf rosalegu ástfóstri við hana þegar þau eru í kringum hana. Hún sýnir þeim svo mikla athygli og þeim þykir alveg rosalega gott að vera í kringum hana að það er eiginlega við það að maður verði afbrýðissamur.

Allavega, í dag var fermingarveisla á Selfossi sem tengdó, frúin og börnin fóru í. Fóru á báðum bílunum austur, en bíll tengdó var búin að vera í bænum þennan tíma sökum þess að það varð að fara með hann í skoðun. Allavega, tengdó hefur gefið stráknum banana frá Chicita (eða hvernig sem það er stafað) og tekið límmiðan af og sett á hendina á stráknum. Svo rétt áðan heyri ég þessi svaðalegu öskur og grát í honum, hálf hleyp til hans þar sem ég held að það hafi eitthvað svakalegt komið fyrir, en neinei, þá er það bara að límmiðinn af banananum var dottinn af hendini á honum og hann var svo svakalega sár útaf þessu! =D

Ég fékk hann, eftir smá stund, til að leggjast aftur upp í rúm og fara að sofa. En varð að lofa honum því að á morgun myndum við hringja í „ömmusiggu“ (lesist: ömmu Hönnu Siggu) og láta hana vita að við ætluðum að setja límmiðann í límmiðabókina hans. Svo vildi hann líka meina að við yrðum að hringja aftur eftir að við værum búnir að því..

Þessi börn =D

Annars fylgir hér með mynd af okkur feðgunum síðan í des, tekin á jólaballi sem við fórum á fjölskyldan.

dsc01406