Pælingar

Nú er svo komið að mér er boðið góður díll í World Class í gegnum vinnuna hjá mér, en ég er enn í áskrift hjá Sporthúsinu og mér líkar vel við að vera þar, en það er bara svo langt að keyra þangað. WC er td hér í Spönginni en Sporthúsið er í Kópavogi. Þannig að það telur fljótt að keyra þangað.

Það endar eflaust með því að ég hætti að pæla svona mikið í þessu og skelli mér bara á WC kortið, en mér finnst samt vera svo mikill mórall í fólki þegar maður minnist á WC.. Væntanlega útaf einhverju sem ég hef ekkert verið að pæla í..

Annars er það að frétta að við Victor frændi erum byrjaðir að vinna að verkefni sem verður vonandi að söluvöru fljótlega. Merkilegt hvað menn skilja hvorn annan þrátt fyrir það að vera í sitt hvoru landinu og geta unnið saman að sameiginlegu markmiði =) Ég minnist nú sérstaklega á það þar sem maður er vanur því að geta varla unnið með mönnum sem maður er að hitta og funda með reglulega, eins og vanin er hér á landi =P

Og já.. ég skipti um þemu aftur á síðunni =) Fyrir valinu í þetta skiptið var innbyggða þeman „Twenty Eleven“ sem fylgir með WordPress. Ástæðan fyrir þessu er að ég er með þessa þemu á annari síðu sem ég skrifa á og ég sá svo mikin mun á leturgerðum á síðunni að ég ákvað að prófa þetta á aðalsíðunni hjá mér líka. Má vel vera að ég eigi eftir að skipta aftur um þemu og fara aftur í fyrri þemu, en enn sem komið er verð ég áfram í þessari ;)

Áframhaldandi þróun

Jæja, þá er ég búin að setja upp issue tracker til að koma ferlinu í gang aftur með WPis viðbótina mína. Sem er stendur hún í útgáfu 1.0.5 og gerir það sem hún átti upphaflega að gera, en ég stefni á að vera búin að setja inn einhverjar nýjungar fram að útgáfu 1.1.
Þar á meðal má minnst á:

  • Umturna útlitinu á bakendanum, hafa viðbótina undir sínum eigin header í stað þess að vera undir „Stillingar / Settings“.
  • Bjóða upp á litla auglýsingu á fæti síðunnar vilji fólk það
  • Aðgreina fréttirnar og uppfærslu þýðingar í sitt hvora undirsíðuna
  • Bæta við leið fyrir fólk til að hafa samband við þýðingarhópin með uppástungur, vandamál eða almenn skilaboð.
  • Bjóða upp á að geta þýtt strengi og senda þá inn til hópsins.

Þetta er ekki tæmandi listi,  það mun eflaust eitthvað breytast við þetta, sumt detta út, annað bætast við. En þarna sjáiði hvað ég er að hugsa með þessu.

Svo má minnast á það að það er komin nýrri útgáfa af þýðingunni, sem er 3.3 samhæfð, þannig að þeir sem eiga eftir að uppfæra eru hvattir til þess að smella á uppfærsluhnappinn í WPis viðbótinni.