iMac

Hreinn unaður að vinna á þessar vélar.
Eins og áður sagði er komin iMac á heimilið, stór og öflug. Langaði bara að deila með ykkur skjáskoti sem ég tók núna fyrr í kvöld ;D

Er annars bara búinn að vera að forrita og sníða html+css á fullu í allan dag, er að ná að ljúka einu stærsta verkefni sem ég hef tekið að mér. Verður ánægjulegt að geta sett þessa fjöður í hattinn þegar verkið er búið, setja það í portfolio’ið og svona ;D

Kem fljótlega með stærri og ítarlegri færslu um allt og ekkert, um leið og ég sé fyrir endan á þessu verki ;D

Spam djöflar

Var að fara yfir eldri færslur og tók eftir því að það er komið töluvert af tómum mótsvörum (comment’um) við færslur hjá mér..
Spurning um að fara að finna upp á einhverju sneddý til að boosta upp spamvörnum hjá sér? =P

Allavega spurning um að víxla smá spurningunum sem koma á síðunni til staðfestingar á að það séu ekki bottar að spama síðuna =P

Fréttir..

Jæja, maður hefur nú ekki verið sá duglegasti við að koma með fréttir hingað inn nýverið..
Við erum allavega komin með iMac á heimilið núna! 24″ monster með nægt vélarafl til að kremja allt annað sem er á heimilinu.

Ég er sjálfur að drukkna hérna varðandi vinnuálag.. er með nokkur verkefni sem ég hefði átt að vera búin með fyrir löngu en einhverra hluta vegna þá drógust þau aftur úr í röðinni. Er að spíta í lófana og klára þau, but it takes time.

Ég er líka búinn að ákveða að fresta áætlaðri útgáfu á Scribe:CMS um ókomin tíma, ég hef hreinlega ekki afl, tíma né orku að vera að vinna í því eitthvað af ráði sem stendur. Þannig að þeir sem hafa verið að bíða eftir nýju útgáfunni, biðst ég afsökunar =P
Ég mun engu að síður halda áfram að þjónusta þær síður sem eru að keyra Scribe:CMS, og bæta við í þau kerfi ef þess gerist þörf, en áframhaldandi þróun á kerfinu er komin á bið sem stendur.

Ég hef hinsvegar verið að pæla í að færa mig meira í hýsingar og útlitshönnun (eins og ég hef sagt áður reyndar) og færa mig úr forritun.. sjáum hvernig fer samt, ætla ekki að gefa það upp að ég ætli aldrei að forrita neitt aftur ;) hehe

Spurning með að láta þetta nægja í bili, þarf að skjótast út og sinna smá erindi.

Yfirhalning!

Ég er byrjaður á yfirhalningu á Scribe, nýtt logo, nýr bakendi.. sami kóði samt (að mestu leyti).
Annars er ég að testa núna hitt og þetta til að setja í kerfið, bæta svona smá.. er að melta að hafa spes blog útgáfu, sem JAFNVEL fær sitt eigið horn hérna á vefnum þannig að fólk geti sótt kerfið hjá mér!
Þetta verður minimal útgáfa til að byrja með.. en það er aldrei að vita nema það verði eitthvað stórt og fallegt við tækifæri..

Annars er þetta eitt af nýjungunum sem ég er búinn að vera að skella inn.. Nýr mediaspilari:

Hleð tónlist..

Endilega commentið og segið mér hvernig ykkur finnst þetta =D Sjáið náttúrulega gamla, ljóta hérna í færslunni beint fyrir neðan ;)

Slipknot já..

Ég hef verið að hlusta soldið mikið á nýja diskinn frá Slipknot og verð að játa það að ég átti seint von á svona rólegu lagi frá þeim..

Lagið heitir „Snuff“ og er lag nr 11 á nýja disknum þeirra „All Hope Is Gone„.
Mjög rólegt lag sem hljómar bara.. mjög vel !

Svo er annað lag á disknum sem heitir „Psychosocial“ sem er meira í gamla gírnum sem maður man eftir ;)

Annars er óttarlega lítið að frétta héðan..

Duttum að vísu í það í gærkveldi.. drakk svooooo mikið á alltof stuttum tíma að ég held hreinlega að ég hafi enn verið í glasi þegar ég vaknaði.. Annað hvort það eða ég hafi verið (og er) svona skelfilega, SKELFILEGA þunnur =P
Það ættu að vera lög fyrir þessu til að hindra að fólk geri sér þetta.. Måske er ég bara svona gamall, eða bara ekki í formi.

Annars er ég að melta hvort maður eigi að fara að æfa Karate aftur, koma sér í form og liðka sig til. Losna við bumbuna mína og fá kannski smá vöðva, aldrei að vita. Var reyndar að skoða nokkur vídeó af Tae Kwon Do á youtube, merkilegt hvað það er mikið action sport!