Spurning..

Nú á ég og hef átt lénið dip.is í fjölda mörg ár, rekið hitt og þetta á síðunni, en aldrei haft tíma til að sinna þeim síðum sem ég set þarna inn almennilega.. Mig er farið að langa að gera eitthvað við lénið almennilega, en dettur ekkert sniðugt í hug. Þannig að ég vil spyrja ykkur góðir lesendur, er eitthvað sem ykkur dettur í hug?
Eina sem ég er að hugsa um er að það yrði helst að vera eitthvað sem kemur öðrum vel, eitthvað til að leggja hönd á plóginn fyrir aðra sem jafnvel minna mega sín ef útí það er farið.

Any ideas?

Smá dútl

Ég er búinn að vera að „dútlast“ aðeins í síðunni núna í kvöld, setti ma. inn 2 nýja bannera sem skiptast á með þeim sem byrjaði í dag.
Skellti bara 2 línum af kóða inn til að rigga það, elska hvað PHP er einfalt og þæginlegt.

Reyndar ein pæling í gangi hjá mér núna, hætta í bili í því að forrita sérverkefni fyrir kúnna.. Þetta tekur svo skelfilega mikin tíma sem ég gæti annars verið að eyða með ma. börnunum
Ég er td. búinn að vera að vinna að einni síðu núna í nokkra mánuði, frekar stórt og flókið kerfi, er jú að nálgast lokin en samt.. Tíminn sem er búinn að fara í þetta er sjúklega mikill!
Ég mun halda áfram að forrita sjálfur bara fyrir mig og eitthvað svolleiðis, halda áfram að þróa Scribe:CMS (kerfið sem ma. þessi síða er keyrð á), gera eitthvað sniðugt á dip.is (síðan þar er löööööngu dauð) og eitthvað slíkt.. en ég er samt mikið að pæla í að hætta að taka að mér borgandi forritunarverkefni.

Annars er lítið að frétta héðan, er að fara á morgun að gera soldið sem ég ætla ekki að minnast á nákvæmlega hvað er, fyrr en ég er búinn að því á morgun (óttarlega er maður cryptic).

Svo er málið sem kom upp í síðustu vinnuviku hjá Securitas..
Málið er að ég er, eins og flestir vita, staðsettur í Hagkaup í Kringlunni og það eru aðrir öryggisverðir í Kringlunni sjálfri. Nema hvað, þegar það er mikið að gera, slagsmál eða stór mál, þá er ég boðaður út úr Hagkaup til að aðstoða. Sem er ekkert nema gott, fínt að fá að skipta aðeins um umhverfi í smá stund.

En allavega, í síðustu viku lentum við í því að það var HIV smitaður sprautufíkill sem veittist að einum öryggisverðinum með notaðri nál, hljóp á eftir henni öskrandi.. ekki beint, nice mál.. =/
Yfirmenn Securitas vilja meina að þetta sé næst alvarlegasta mál sem komið hefur upp í Kringlunni frá upphafi. Þetta hafði allavega ekki góð áhrif á þá sem var elt af kerlingunni snaróðu, mig né nokkurn sem var þarna og sá þetta.

Spurningin mín er.. hvert í ósköpunum stefnum við ef þetta er „daglegt brauð“.. Svo fékk ég þær fréttir fyrr í dag að þegar öryggisvörðurinn ætlaði að kæra málið, líkamsárásina og, að mínu mati, morðtilraunina.. þá er henni tjáð að þetta gagnist ekkert þar sem *ekkert verði gert*, það þýði ekkert að gera neitt fyrst þessi manneskja væri eins og hún væri?

Hvað er í gangi? Fyrst fær maður að heyra þetta með MMS/Stalker málið okkar í vikunni, svo þetta.. En þarna eru samt lög BROTIN.. Af hverju í ósköpunum er ekki hægt að fá kæru í gegn á þessa manneskju ?

En já, ætla að fara að forrita meira.. Læt í mér heyra aftur síðar =)

axelrafn.org v2.0!

Jæja.. þá er útgáfa 2.0 komin í loftið!

Endilega segið mér hvernig ykkur finnst og slíkt. Ég á eflaust eftir að fikta eitthvað við þetta, betrumbæta og slíkt, en þetta er allavega mjög góð byrjun ;)
Skelli eflaust einhverju meira inn í dag í dagbókina, en ætla að halda áfram að vinna samt ;D

Smá viðvörun!

Yes.. Ég er búinn að gera nýtt look á síðuna, ætti að kicka inn í kveld ef allt virkar rétt..
Nýja síðan er freeeeekar ljós mv. núverandi look, ég er samt ekki 100% hvort ég taki hana í notkun 1, 2 og 3, þarf fyrst að sjá hvernig hún fúnkerar með innihaldi, er náttúrulega bara á „teikniborðinu“ sem stendur ;)

Gef upp hlekk á eftir mögulega ef mig vantar álit á þessu ;)

Hver er minn réttur?

Ég ætla að lýsa smá rugli sem er búið að vera í gangi núna..
Málið er að Kristín fór með börnin upp á Flúðir fimmtudaginn 31. Júlí og það kvöld kom ónafngreind vinkona mín í heimsókn til mín, vorum að spjalla um allt og ekkert sem hvílir á öxlum okkar og slíkt, horfðum á vídeó og svo fór hún heim. Nema hvað, ca 5 mín eftir að hún fer héðan þá hringir síminn minn, sé ekkert númer, blikkar bara „Leyninúmer“ á skjánnum, ég svara og þar er kvenmaður sem kynnir sig sem leynilegan aðdáanda minn og að hún vilji bara heyra í mér hljóminn, klukkan hálf eitt á aðfaranótt fimmtudags.. Ég skelli bara á og þá hringir síminn strax aftur, same thing „Leyninúmer“, ákvað að skella bara beint á.

Ég reyni svo að hringja í Kristínu og athuga hvort þetta sé eitthvað djók í henni og vinkonum hennar upp á Flúðum (gætu hafa verið komnar í glas eða eitthvað, hvað veit maður), en nei, þá hafði henni verið sent MMS með 3 myndum af bílnum sem vinkona mín var á og húsinu okkar hérna, síðasta myndin var svo af henni labbandi að bílnum sínum.

Þetta myndi ég telja vera brot á friðhelgi, að sitja um mann og annan, takandi myndir og reyna að skemma eitthvað fyrir fólki..

Lögregla

Allavega, núna áðan vorum við niðurfrá á lögreglustöðinni, þar sem okkur er tjáð að það sé í raun ekkert sem við getum gert þar sem engin lög hafi verið brotin.. Við eigum semsagt bara að gúddera það að það sé í lagi að stalka fólk!?

Ég spurði þá hvort að það væri lögbrot ef ég hefði samband við hina ýmsu sem ég þekki hjá ma. Símanum, Tal, Vodafone oþh. fyrirtækjum og finndi út sjálfur hver þetta væri til að hreinlega loka á viðkomandi frá okkar dyrum (meina.. maður vill ekki vera að babbla um hitt og þetta við aðila sem er svo ekki treystandi!).. en nei, þá er ÞAÐ lögbrot af aðilanum sem myndi afhenda mér þau gögn..

Þannig að núna er í raun ekkert sem ég get gert, mér vitanlega, til að komast að því á löglegan hátt hver þetta er.. Ætla reyndar að ræða við lögfræðing útaf þessu og athuga hvort það sé séns að td. fá dómsúrskurð um að fá gögnin afhent frá Símanum/Vodafone etc.. og fá þannig að vita hver þetta er án þess þó að kæra málið þar sem engin lög voru brotin greinilega..

Er þetta virkilega réttur venjulegs borgara?! Að þurfa eyða mögulegri fúlgu í lögfræðing til að fá dómsúrskurð sem mögulega maður fengi ekki hvort sem er.. Manni er bara spurn..