Archive for the 'Röfl' Category

Ætli sé ekki komin tími til ?

Að setja inn eins og eina færslu.

Ég hef verið að keyra svo mikið að ég hef varla mátt vera að því að anda þess á milli, að undanskildri verslunarmannahelginni, þá var tjúttað á Grafarbakka á Flúðum eins og reglur segja til um!
Ég reyndar varla náði því, var að koma úr ferð á laugardeginum og við vorum á síðasta snúning að komast aftur á Flúðir, ég nefnilega átti að skila rútunni í bænum.. Vorum komin á Grafarbakka um 20-21:00 minnir mig. Svo var ég nú það þreyttur að við fórum að kúra rétt um miðnætti ég og frúin,

Ég er að vísu í ferð núna líka, 9 daga ferð í kring um landið og gisti allsstaðar á hótelum! Fyrsta skiptið sem slík ferð lendir í mínum höndum og því mjög gaman að upplifa þetta =D
Er so far búinn að gista á Hótel Eddu hótelum á: Skógum, Nesjum (við Höfn), Neskaupstað og nú í dag (og á morgun) á Akureyri. Glettilega mikill munur á hótelunum þótt þau eigi að heita sama keðjan, td. eru nokkur þeirra bara með frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar en hin frá bara með frá Vífilfell.. Svo munar í þokkabót líka á verðum milli hótelana, þeas. 0.33cl dós af fanta á Skógum kostar 250.- kr en 0.25cl flaska af pepsi kostar 300 á Neskaupstað.. Just strange að mínu mati =P

Annars fer mig að langa að heyra frá fyrirtækinu fljótlega hvort ég sé komin á fast í vetur eða verði notaður sem sumar gaur. Ekki að það breyti neinu varðandi restina af sumrinu, það bara gerir meira fyrir mann að vita að þetta er for keeps ef þannig að orði má komast.

Annars er óttarlega lítið að frétta frá okkur nýverið að undanskildu því að við versluðum okkur bíl. VW Golf, árgerð 2001. 2 lítra vél og sjálfskiptur. Óttarlegur lúxus að aka þessum bíl, þetta er þessi klassíski Golf að sjá, ekki með skotti. En samt er alveg ótrúlegt plássið í honum!

En já, spurning um að fara að halla sér og halda á vit draumaheims. Þarf að byrja extra snemma á morgun og þrífa rútuna ásamt því að fylla á olíu ofl. Gat ómögulega hugsað mér að gera það áðan þar sem þetta er búið að vera það langur dagur í dag =P yfir 350 km eknir með guð má vita hve mörgum stoppum hér og þar í brennandi sól.


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Akismet

Ég hef nú ekki þurft að kvarta neitt undan Akismet viðbótinni fyrir WordPress varðandi að ráða við spam mótsvör á síðunni hjá mér, en núna rétt áðan tók ég eftir mótsvari sem hefði aldrei nokkurn tímann átt að geta sloppið framhjá Akismet.. Eins og staðan er núna þá hefur Akismet stoppað 2,359 rusl-athugasemdir en sjáiði bara þetta ferlíki sem beið eftir samþykki hjá mér…

Hvernig má vera að mótsvar með þetta mörgum hlekkjum geti ekki talist sem spam ? Mér er spurn =P


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Eðlileg vinnubrögð ?

Nú dag kl 9:32 lendum við í því hérna heima að netið dettur út, sem er svo sem ekki frá sögu færandi nema hvað að heimasíminn dettur líka út.. Engin sónn eða neitt. Fyrir utan er bíll frá Mílu að vinna í Ljósneti Símans (ættu þeir að vera að því?) og það stökk strax upp í fyrsta sætið yfir mögulegar ástæður þess að allt væri úti, þegar ég horfi útum þakgluggann sé ég klárlega að hann er með stórt hnippi af símalínum í höndunum. Ég ákvað því að láta frúnna tékka fyrst hjá Vodafone hvort það væri ekki örugglega allt í orden þar, sem og var. Þannig að ég hringi í Mílu til að fá upplýsingar þaðan hvað sé í gangi. Þar vill kerlingin sem svarar símanum ekkert meina að neitt sé í gangi sem tengist símalögnum eða neitt..
Hún hringir í einhvern tæknimann sem svarar henni og segir hreint út að það sé ekkert verið að vinna í símalögnum og hvað eina.. sem hún segir mér, ég bendi þá á að ég stari á manninn og hann sé með þetta hnippi í höndunum, ég hafi sjálfur unnið með slíkar lagnir þannig að ég viti alveg að það sé víst verið að vinna með þetta, ég vilji fá svör um þetta og ástæðu fyrir því að maður fær enga aðvörun, fyrirvara eða neitt ef um einhverja viðgerð er að ræða.
Þá reynir hún að hringja aftur í einhvern sem lætur hana bara sitja á bið og á endanum segir hún mér alveg það sama og áður, það sé *ekki* verið að vinna í neinum símalögnum á þessum stað og því sé þetta eitthvað hjá Vodafone en ekki þeim. Ég eigi að snúa mér þangað, þrátt fyrir þær upplýsingar að ég sé þegar búinn að athuga þar.

Ég enda með því að rölta út og horfi ofan í gryfjuna hjá greyið manninum hérna úti, þá var jú planið að vinna í ljósnetinu en við uppgröftinn eða eitthvað kom eitthvað fyrir “múffuna” og því sé hreinlega búið að aftengja alla götuna takk fyrir..

Hvernig má vera að þetta sé normið ? Ég hringi í fyrirtækið sem er að vinna í lögnunum hérna úti og engin veit neitt.. ég tala við manninn þar úti og hann játar þetta klárt og simple..

Ég hélt að ef það væri verið að fara að vinna í þessum grunnlögnum, hita, rafmagni eða jarðlínu (síma) þá YRÐI að tilkynna það ? Það er ekki eins og þetta hafi bara gerst áðan .. netið og síminn virkaði fínt þar til hann klippti á þetta hérna hjá okkur.. Þar að auki var það fyrir helgi sem grafan var hérna og gerði þessa holu í jörðina, ekki í morgun.

Fyrst það líður svona langur tími frá því að þetta var grafið og að þessi “múffa” skemmdist, hafði Míla þá ekki nægan tíma til að láta vita í hverfinu með þetta ? Og í versta falli, ef þetta uppgötvaðist bara áðan þegar hann hefur ætlað að fara að vinna í þessu Ljósneti Símans, þá hefði hann ekkert átt að aftengja nokkurn skapaðan hlut án þess að láta vita af sér, að lágmarki til þess fyrirtækis sem hann er að vinna fyrir hérna í götunni!

Mér fannst annars guttinn hérna úti á Mílu bílnum en í Síminn kuldagallanum vera mikið liðlegri en kerlingin á skiptiborðinu hjá Mílu.. Pirrar mig samt skelfilega að þetta sé “normið” að flæði upplýsinga hjá fyrirtækjum sé svona ábótavant og að ef það er skylda að tilkynna viðgerðir fyrirfram að það sé ekki gert.


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Feginn, fegnari, fegnastur!

Nú í síðustu viku hrundi hjá mér þjónninn sem ma. hýsir þennan vef, þeas. diskurinn sem innihélt MySQL grunnana og póstinn var allt í einu hlaðinn bad sectors, virkaði fínt meðan vélin var í gangi en sökum þess að það þurfti að slökkva á vélinni um stund þá þurrkaðist index’inn út á disknum.

Svo til að toppa allt þá virkaði ekki afritunarscriptan sem ég forritaði og testaði ítrekað í VMWare vél hjá mér, þannig að ég sat eftir með sárt ennið að reyna að redda gögnunum af þessum handónýta disk.. 184 bad sector’ar voru á blá byrjun þeirrar disksneiðar sem gögnin voru á og því var indexinn og eitthvað af journal inode’unum farnar.. Virkaði ekkert að reyna að mount’a né keyra fsck á diskinn, ekki hægt að laga sökum þess að endalausar I/O villu meldingar birtust og forrit eftir forrit dó við að reyna að bjarga gögnunum.

Ég reyndi dd ofl forrit.. ég var búin að láta vélina malla með ýmsan hugbúnað í 3 sólarhringa, þar til ég gafst upp og var komin á Google enn eina ferðina og viti menn, þar rakst ég á litla færslu í bloggi hjá einhverjum austurlandabúa sem skrifaði um lítið tól sem hann hefði notað (eða skrifað?) sem héti dd_rescue. Það væri byggt á dd en það hreinlega hoppaði yfir slæmu partana, en einbeitti sér ekki að þeim líkt og önnur forrit. Ég prófaði að keyra þetta og dumpa output’inu í dump.img skrá og viti menn, 3 klst síðar átti ég 180GB IMG skjal sem var nákvæmt afrit af disknum, nema þetta afrit gat ég keyrt fsck á og mountað svo via loopback og sótt öll gögnin óskemmd!

Moral of the story:

  1. Alltaf tryggja að backup sé í gangi
  2. dd_rescue er ÓMISSANDI tól!

Vona að þetta útskýri blackout’ið hérna og á mörgum öðrum síðum ;) Ég er að vinna í að reyna að koma öllu upp aftur.


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr

Framtíð síðunnar

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Ég er að dúlla mér aðeins að leika mér að setja upp síðuna í Fireworks hjá mér, hlustandi á Manic Street Preachers á fullu (sjá meðfylgjandi lag).. Er svo líka að melta með headerinn á útlitinu sem ég er að malla núna, hafa það soldið grunge-legt:

Hvað finnst þér um þetta? Það verður að vísu á dökkum bakgrunni og skugginn deyr ekki svona skyndilega eins og þessu dæmi ;)

Annars er ég búinn að vera að testa á fullu Ubuntu 10.04 alpha þessa dagana og hef bara fundið einn hlut sem ég vona að haldist ekki í endanlegri útgáfu af 10.04.. þeas. þeir fluttu takkana til að loka, minnka og stækka gluggana á efra vinstra hornið frá efra hægra horninu.. Svona eins og er í Mac, nema hvað í Mac er þetta speglað, þeas. að hnapparnir frá vinstri til hægri er: Rauður (loka), Gulur (minnka), Grænn (stækka)… Í alpha útgáfunni af Ubuntu er þetta hinsvegar akkúrat öfugt.. þannig að ég er alltaf að smella á loka þegar ég ætla að stækka og öfugt =P kinda sucks!


Deildu með öðrum:
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Live
  • MySpace
  • Reddit
  • Tumblr