Andleysi enn eina ferðina

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Ég er búinn að vera óttarlega andlaus núna síðustu vikur eftir að törninni hjá Guðmundi Tyrfings lauk, ferðamannatímaliðið greinilega liðið og lítið um ferðir að fá. Búinn að vera heima og hef eiginlega ekkert haft að gera nema það jú að við frúin nældum okkur í árskort í Sporthúsinu, það gengur prýðilega að mæta og við finnum strax mun á okkur varðandi þol og fleirra.

Það verður skrítið að hafa ekkert að gera núna í vetur og ég er strax byrjaður að pæla í verkefnum sem ég get dundað mér í, ofarlega þar á lista eru:

  • Verða mér út um timbur og smíða td. skáp inn á baðherbergi, ljósaplötur í loft ofl í íbúðina.
  • Vinna í þýðingunni sem ég stofnaði hér um árið fyrir WordPress.
  • Endurforrita WPis viðbótina mína og uppfæra helling varðandi hana.
  • Dúlla mér í einu sérverkefni sem tengist forritun og mikilli Blender vinnslu.

Þetta er ekki tæmandi listi og það á eflaust eitthvað eftir að bætast við, sé vel fyrir mér að maður verði að finna sér margt og mikið til viðbótar við þetta til að hafa nóg fyrir stafni í vetur ef ekkert annað býðst.. Veit bara að ég er ekki að höndla eins vetur og síðast þegar ekkert var í boði hérna. Svona atvinnuleysi fer alveg með mann og það að hanga heima alla daga og einu mannlegu samskiptin eru í gegnum tölvur eða síma.

Dagurinn í dag er annars búin að vera hin besti, veðrið úti gerir svo kammó og þægilegt andrúmsloft inni finnst mér, búið að rigna nánast án þess að stoppa í allan dag. Ég renndi út í búð fyrr í kvöld og þegar ég kom til baka drap ég á bílnum og sat í þögninni í smá stund. Verulega þægilegt að sitja grafkyrr, loka augunum og hlusta á rigninguna berja bílinn með dropunum.

Svo er rútínan komin í gang eins og margir segja, skólinn og leiksskólinn komnir í gang. Ferlega þægilegt, bara óskandi að ég hefði einhvern stað til að fara á til að vinna líka ;D

Eins og þú hefur eflaust tekið eftir þá er Ray LaMontagne sá tónlistarmaður sem ég hlusta sem mest á þessa dagana, var að uppgötva hann núna rétt um daginn og hef varla hætt að hlusta á hann.. Ferlega skrítið hvað ég fell fyrir svona rólegri tónlist þessa dagana, gæti tengst eitthvað komu vetrar ;)

Svo í þokkabót sérðu væntanlega stóra breytingu á vefnum hjá mér, ákvað að taka inn þemu sem heitir Smooth og breyta henni soldið, vinn hana eflaust meira til núna í náinni framtíð, en ég er líka að vinna í því að gera mína eigin þemu sem verður einhvern tíman tilbúin. Spurning bara hvenær ? ;)

Ofnotkun Flash Auglýsinga

Það er eitt sem hefur plagað mig í nokkur ár og með hverri vikunni sem líður ágerist þetta alltaf meir og meir. Vandamálið er ofnotkun Flash auglýsinga á íslenskum fréttamiðlum.

Ég nota sjálfur FlashBlock eða sambærilega viðbót fyrir þann vafra sem ég nota að hverju sinni og er farinn að taka eftir því að þetta er farið að skemma valmyndir og fleirra =/

Til dæmis um að þetta sé að skemma valmyndir setti ég inn lítið vídeó sem sýnir hvernig Pressan var hjá mér fyrir nokkrum dögum..

Þarna sést klárlega hvernig léleg forritun á staðsetningu Flash auglýsingar er að hamla minn aðgang að valmyndinni.

Svo eru hér skjámyndir af nokkrum frægum síðum sem sýna hve hár fjöldi Flash auglýsinga er .. þetta er hreint út sagt allt of mikið.

Gráu svæðin á vefsíðunum sem virðast ekki eiga heima þarna væri annars Flash ef ég væri ekki með filter’að fyrir það.
Þess má geta að þarna síðast er síða BBC og þar sést varla að Flash sé notað.. Hvers vegna? Nú vegna þess að þeir nota EKKERT Flash á síðunni þar..

Ætli sé ekki komin tími til ?

Að setja inn eins og eina færslu.

Ég hef verið að keyra svo mikið að ég hef varla mátt vera að því að anda þess á milli, að undanskildri verslunarmannahelginni, þá var tjúttað á Grafarbakka á Flúðum eins og reglur segja til um!
Ég reyndar varla náði því, var að koma úr ferð á laugardeginum og við vorum á síðasta snúning að komast aftur á Flúðir, ég nefnilega átti að skila rútunni í bænum.. Vorum komin á Grafarbakka um 20-21:00 minnir mig. Svo var ég nú það þreyttur að við fórum að kúra rétt um miðnætti ég og frúin,

Ég er að vísu í ferð núna líka, 9 daga ferð í kring um landið og gisti allsstaðar á hótelum! Fyrsta skiptið sem slík ferð lendir í mínum höndum og því mjög gaman að upplifa þetta =D
Er so far búinn að gista á Hótel Eddu hótelum á: Skógum, Nesjum (við Höfn), Neskaupstað og nú í dag (og á morgun) á Akureyri. Glettilega mikill munur á hótelunum þótt þau eigi að heita sama keðjan, td. eru nokkur þeirra bara með frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar en hin frá bara með frá Vífilfell.. Svo munar í þokkabót líka á verðum milli hótelana, þeas. 0.33cl dós af fanta á Skógum kostar 250.- kr en 0.25cl flaska af pepsi kostar 300 á Neskaupstað.. Just strange að mínu mati =P

Annars fer mig að langa að heyra frá fyrirtækinu fljótlega hvort ég sé komin á fast í vetur eða verði notaður sem sumar gaur. Ekki að það breyti neinu varðandi restina af sumrinu, það bara gerir meira fyrir mann að vita að þetta er for keeps ef þannig að orði má komast.

Annars er óttarlega lítið að frétta frá okkur nýverið að undanskildu því að við versluðum okkur bíl. VW Golf, árgerð 2001. 2 lítra vél og sjálfskiptur. Óttarlegur lúxus að aka þessum bíl, þetta er þessi klassíski Golf að sjá, ekki með skotti. En samt er alveg ótrúlegt plássið í honum!

En já, spurning um að fara að halla sér og halda á vit draumaheims. Þarf að byrja extra snemma á morgun og þrífa rútuna ásamt því að fylla á olíu ofl. Gat ómögulega hugsað mér að gera það áðan þar sem þetta er búið að vera það langur dagur í dag =P yfir 350 km eknir með guð má vita hve mörgum stoppum hér og þar í brennandi sól.

Akismet

Ég hef nú ekki þurft að kvarta neitt undan Akismet viðbótinni fyrir WordPress varðandi að ráða við spam mótsvör á síðunni hjá mér, en núna rétt áðan tók ég eftir mótsvari sem hefði aldrei nokkurn tímann átt að geta sloppið framhjá Akismet.. Eins og staðan er núna þá hefur Akismet stoppað 2,359 rusl-athugasemdir en sjáiði bara þetta ferlíki sem beið eftir samþykki hjá mér…

Hvernig má vera að mótsvar með þetta mörgum hlekkjum geti ekki talist sem spam ? Mér er spurn =P

Eðlileg vinnubrögð ?

Nú dag kl 9:32 lendum við í því hérna heima að netið dettur út, sem er svo sem ekki frá sögu færandi nema hvað að heimasíminn dettur líka út.. Engin sónn eða neitt. Fyrir utan er bíll frá Mílu að vinna í Ljósneti Símans (ættu þeir að vera að því?) og það stökk strax upp í fyrsta sætið yfir mögulegar ástæður þess að allt væri úti, þegar ég horfi útum þakgluggann sé ég klárlega að hann er með stórt hnippi af símalínum í höndunum. Ég ákvað því að láta frúnna tékka fyrst hjá Vodafone hvort það væri ekki örugglega allt í orden þar, sem og var. Þannig að ég hringi í Mílu til að fá upplýsingar þaðan hvað sé í gangi. Þar vill kerlingin sem svarar símanum ekkert meina að neitt sé í gangi sem tengist símalögnum eða neitt..
Hún hringir í einhvern tæknimann sem svarar henni og segir hreint út að það sé ekkert verið að vinna í símalögnum og hvað eina.. sem hún segir mér, ég bendi þá á að ég stari á manninn og hann sé með þetta hnippi í höndunum, ég hafi sjálfur unnið með slíkar lagnir þannig að ég viti alveg að það sé víst verið að vinna með þetta, ég vilji fá svör um þetta og ástæðu fyrir því að maður fær enga aðvörun, fyrirvara eða neitt ef um einhverja viðgerð er að ræða.
Þá reynir hún að hringja aftur í einhvern sem lætur hana bara sitja á bið og á endanum segir hún mér alveg það sama og áður, það sé *ekki* verið að vinna í neinum símalögnum á þessum stað og því sé þetta eitthvað hjá Vodafone en ekki þeim. Ég eigi að snúa mér þangað, þrátt fyrir þær upplýsingar að ég sé þegar búinn að athuga þar.

Ég enda með því að rölta út og horfi ofan í gryfjuna hjá greyið manninum hérna úti, þá var jú planið að vinna í ljósnetinu en við uppgröftinn eða eitthvað kom eitthvað fyrir „múffuna“ og því sé hreinlega búið að aftengja alla götuna takk fyrir..

Hvernig má vera að þetta sé normið ? Ég hringi í fyrirtækið sem er að vinna í lögnunum hérna úti og engin veit neitt.. ég tala við manninn þar úti og hann játar þetta klárt og simple..

Ég hélt að ef það væri verið að fara að vinna í þessum grunnlögnum, hita, rafmagni eða jarðlínu (síma) þá YRÐI að tilkynna það ? Það er ekki eins og þetta hafi bara gerst áðan .. netið og síminn virkaði fínt þar til hann klippti á þetta hérna hjá okkur.. Þar að auki var það fyrir helgi sem grafan var hérna og gerði þessa holu í jörðina, ekki í morgun.

Fyrst það líður svona langur tími frá því að þetta var grafið og að þessi „múffa“ skemmdist, hafði Míla þá ekki nægan tíma til að láta vita í hverfinu með þetta ? Og í versta falli, ef þetta uppgötvaðist bara áðan þegar hann hefur ætlað að fara að vinna í þessu Ljósneti Símans, þá hefði hann ekkert átt að aftengja nokkurn skapaðan hlut án þess að láta vita af sér, að lágmarki til þess fyrirtækis sem hann er að vinna fyrir hérna í götunni!

Mér fannst annars guttinn hérna úti á Mílu bílnum en í Síminn kuldagallanum vera mikið liðlegri en kerlingin á skiptiborðinu hjá Mílu.. Pirrar mig samt skelfilega að þetta sé „normið“ að flæði upplýsinga hjá fyrirtækjum sé svona ábótavant og að ef það er skylda að tilkynna viðgerðir fyrirfram að það sé ekki gert.