Eðlileg vinnubrögð ?

Nú dag kl 9:32 lendum við í því hérna heima að netið dettur út, sem er svo sem ekki frá sögu færandi nema hvað að heimasíminn dettur líka út.. Engin sónn eða neitt. Fyrir utan er bíll frá Mílu að vinna í Ljósneti Símans (ættu þeir að vera að því?) og það stökk strax upp í fyrsta sætið yfir mögulegar ástæður þess að allt væri úti, þegar ég horfi útum þakgluggann sé ég klárlega að hann er með stórt hnippi af símalínum í höndunum. Ég ákvað því að láta frúnna tékka fyrst hjá Vodafone hvort það væri ekki örugglega allt í orden þar, sem og var. Þannig að ég hringi í Mílu til að fá upplýsingar þaðan hvað sé í gangi. Þar vill kerlingin sem svarar símanum ekkert meina að neitt sé í gangi sem tengist símalögnum eða neitt..
Hún hringir í einhvern tæknimann sem svarar henni og segir hreint út að það sé ekkert verið að vinna í símalögnum og hvað eina.. sem hún segir mér, ég bendi þá á að ég stari á manninn og hann sé með þetta hnippi í höndunum, ég hafi sjálfur unnið með slíkar lagnir þannig að ég viti alveg að það sé víst verið að vinna með þetta, ég vilji fá svör um þetta og ástæðu fyrir því að maður fær enga aðvörun, fyrirvara eða neitt ef um einhverja viðgerð er að ræða.
Þá reynir hún að hringja aftur í einhvern sem lætur hana bara sitja á bið og á endanum segir hún mér alveg það sama og áður, það sé *ekki* verið að vinna í neinum símalögnum á þessum stað og því sé þetta eitthvað hjá Vodafone en ekki þeim. Ég eigi að snúa mér þangað, þrátt fyrir þær upplýsingar að ég sé þegar búinn að athuga þar.

Ég enda með því að rölta út og horfi ofan í gryfjuna hjá greyið manninum hérna úti, þá var jú planið að vinna í ljósnetinu en við uppgröftinn eða eitthvað kom eitthvað fyrir „múffuna“ og því sé hreinlega búið að aftengja alla götuna takk fyrir..

Hvernig má vera að þetta sé normið ? Ég hringi í fyrirtækið sem er að vinna í lögnunum hérna úti og engin veit neitt.. ég tala við manninn þar úti og hann játar þetta klárt og simple..

Ég hélt að ef það væri verið að fara að vinna í þessum grunnlögnum, hita, rafmagni eða jarðlínu (síma) þá YRÐI að tilkynna það ? Það er ekki eins og þetta hafi bara gerst áðan .. netið og síminn virkaði fínt þar til hann klippti á þetta hérna hjá okkur.. Þar að auki var það fyrir helgi sem grafan var hérna og gerði þessa holu í jörðina, ekki í morgun.

Fyrst það líður svona langur tími frá því að þetta var grafið og að þessi „múffa“ skemmdist, hafði Míla þá ekki nægan tíma til að láta vita í hverfinu með þetta ? Og í versta falli, ef þetta uppgötvaðist bara áðan þegar hann hefur ætlað að fara að vinna í þessu Ljósneti Símans, þá hefði hann ekkert átt að aftengja nokkurn skapaðan hlut án þess að láta vita af sér, að lágmarki til þess fyrirtækis sem hann er að vinna fyrir hérna í götunni!

Mér fannst annars guttinn hérna úti á Mílu bílnum en í Síminn kuldagallanum vera mikið liðlegri en kerlingin á skiptiborðinu hjá Mílu.. Pirrar mig samt skelfilega að þetta sé „normið“ að flæði upplýsinga hjá fyrirtækjum sé svona ábótavant og að ef það er skylda að tilkynna viðgerðir fyrirfram að það sé ekki gert.

Feginn, fegnari, fegnastur!

Nú í síðustu viku hrundi hjá mér þjónninn sem ma. hýsir þennan vef, þeas. diskurinn sem innihélt MySQL grunnana og póstinn var allt í einu hlaðinn bad sectors, virkaði fínt meðan vélin var í gangi en sökum þess að það þurfti að slökkva á vélinni um stund þá þurrkaðist index’inn út á disknum.

Svo til að toppa allt þá virkaði ekki afritunarscriptan sem ég forritaði og testaði ítrekað í VMWare vél hjá mér, þannig að ég sat eftir með sárt ennið að reyna að redda gögnunum af þessum handónýta disk.. 184 bad sector’ar voru á blá byrjun þeirrar disksneiðar sem gögnin voru á og því var indexinn og eitthvað af journal inode’unum farnar.. Virkaði ekkert að reyna að mount’a né keyra fsck á diskinn, ekki hægt að laga sökum þess að endalausar I/O villu meldingar birtust og forrit eftir forrit dó við að reyna að bjarga gögnunum.

Ég reyndi dd ofl forrit.. ég var búin að láta vélina malla með ýmsan hugbúnað í 3 sólarhringa, þar til ég gafst upp og var komin á Google enn eina ferðina og viti menn, þar rakst ég á litla færslu í bloggi hjá einhverjum austurlandabúa sem skrifaði um lítið tól sem hann hefði notað (eða skrifað?) sem héti dd_rescue. Það væri byggt á dd en það hreinlega hoppaði yfir slæmu partana, en einbeitti sér ekki að þeim líkt og önnur forrit. Ég prófaði að keyra þetta og dumpa output’inu í dump.img skrá og viti menn, 3 klst síðar átti ég 180GB IMG skjal sem var nákvæmt afrit af disknum, nema þetta afrit gat ég keyrt fsck á og mountað svo via loopback og sótt öll gögnin óskemmd!

Moral of the story:

  1. Alltaf tryggja að backup sé í gangi
  2. dd_rescue er ÓMISSANDI tól!

Vona að þetta útskýri blackout’ið hérna og á mörgum öðrum síðum ;) Ég er að vinna í að reyna að koma öllu upp aftur.

Framtíð síðunnar

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Ég er að dúlla mér aðeins að leika mér að setja upp síðuna í Fireworks hjá mér, hlustandi á Manic Street Preachers á fullu (sjá meðfylgjandi lag).. Er svo líka að melta með headerinn á útlitinu sem ég er að malla núna, hafa það soldið grunge-legt:

Hvað finnst þér um þetta? Það verður að vísu á dökkum bakgrunni og skugginn deyr ekki svona skyndilega eins og þessu dæmi ;)

Annars er ég búinn að vera að testa á fullu Ubuntu 10.04 alpha þessa dagana og hef bara fundið einn hlut sem ég vona að haldist ekki í endanlegri útgáfu af 10.04.. þeas. þeir fluttu takkana til að loka, minnka og stækka gluggana á efra vinstra hornið frá efra hægra horninu.. Svona eins og er í Mac, nema hvað í Mac er þetta speglað, þeas. að hnapparnir frá vinstri til hægri er: Rauður (loka), Gulur (minnka), Grænn (stækka)… Í alpha útgáfunni af Ubuntu er þetta hinsvegar akkúrat öfugt.. þannig að ég er alltaf að smella á loka þegar ég ætla að stækka og öfugt =P kinda sucks!

Smá Nörd

Ég á Sans Fuze 4GB mp3 spilara sem ég eignaðist í sumar þegar gamli góði Samsung spilarinn fór óvart í þvott með vinnufötunum mínum. En allavega, ég varð mjög ánægður með að eignast þennan þar sem hann dekkar vídeó, er með innbyggt útvarp, styður podcast og audiobooks.

Ég varð fyrst fyrir vonbrigðum með hann núna um daginn þegar ég uppfærði Firmware’ið í honum og tók eftir að það var búið að kippa út valmöguleikanum að stilla volume’ið annað hvort á normal eða loud skalann. Loud var horfið og átti ekkert að koma aftur sökum þess að þetta var framkvæmt til að fylgja einhverri reglugerð innan Evrópu. Þetta finnst mér skítt þar sem að normal skalinn í botni er varla hálfur Loud skalinn.. og ef svo vill til að maður sé að vinna við jarðvinnutæki eða álíka, eins og ég gerði sl. sumar, þá myndi ekki NEITT heyrast í spilaranum vegna láta í kring.

Mér til mikillar ánægju komst ég að því eftir eina leit á Google að það væri ekkert mál að færa sig til baka um firmware á þessum spilara. Og til þess þurfti ekkert vesen, bara að setja eldra firmware inn á sama máta og nýrra firmware er sett inn á hann.. Uppfærslukerfið í Fuze spilaranum er algerlega yndislegt varðandi það. Lítur á bæði upp og niðurfærslur eins. Þannig að nú er ég kominn með þetta eldra firmware inn aftur og get hækkað svo hátt aftur að ég gæti ef ég vildi tjónað í mér eyrun, ekki að ég geri það þó.

Fyrir áhugsama eigendur Sansa Fuze sem vilja fá þennan valmöguleika aftur eru hér smá leiðbeiningar:

  1. Tengja spilarann við tölvuna og opna rótina á spilaranum
  2. Ná í þetta zip skjal og afpakka því á tölvunni þinni þannig að þú sért komin með „fuzea.bin“ skjal.
  3. Afrita/færa „fuzea.bin“ í rótina á spilaranum.
  4. Aftengja spilarann og leyfðu honum að upp/niðurfæra sig.
  5. Kveikja á spilaranum eftir að hann hefur slökkt á sér í lok upp/niðurfærslu.

There you go ! Vona að þetta gagnist einhverjum öðrum.

Helgin komin

En ég fæ enga afslöppun ;D Verð í skyndihjálparnámskeiði alla helgina í tengslum við meiraprófið mitt, svo á þriðjudaginn byrja ég í bóklega náminu „stór ökutæki“ og „bifreiðartækni 2″, shit hvað ég hlakka mikið til =D

Annars rakst ég á nokk skemmtilega frétt áðan á /. sem talar um hvernig skiptingin er á kóða sem er notaður í Linux kjarnann, þeas. hvaðan kemur sá kóði ? Jú.. 75% af þeim kóða sem var sendur inn á bilinu 24 desember 2008 til 10 janúar 2010 var skrifaður af fólki sem er borgað fyrir það af sínu fyrirtæki, þám. eru fyrirtæki á við Intel, IBM, Red Hat og Novell. Aðeins 18% af þeim kóða sem sendur var inn á þessum tíma var ekki merktur neinum fyrirtækjum.

Hvað sýnir þetta okkur? Jú, fyrirtæki eru farin að eyða meiri tíma og meiri pening í að vinna við Linux og það hjálpar okkur öllum. Þetta þýðir að við fáum [líklega] fyrr stuðning við nýjustu tækin og innvolsið í vélum.

Mér finnst þetta skref í rétta átt =D