Jæja, ég hef tekið ákvörðun sem ég hef melt frekar vel fyrir mér. Ég er alfarið hættur við áframhaldandi þróun á Scribe kerfunum sem ég hef talað töluvert um hér á síðunni. Þess í stað ætla ég að fara að forrita viðbætur (plug-in) fyrir WordPress og álíka kerfi.
Ég er búin að vera að kynna mér ágætlega það lestrarefni sem er á WordPress síðunni fyrir forritara og ég verð hreinlega að játa það að ég er ástfangin! Ég hef aldrei á ævinni séð jafn skipulag umhverfi og það sem höfundir WordPress hafa skapað þarna fyrir mann.
Eina vandamálið er, hvaða viðbætur get ég forritað fyrir kerfið ?
Fyrsta sem mér datt í hug er að forrita vefverslun, er hvort eðer nýbúin að forrita standalone vefverslun, tekur ekki mikin tíma að breyta í viðbót fyrir WordPress.
En mig langar að vita, hefur þú einhverjar hugmyndir um hverslags viðbætur ég gæti búið til fyrir kerfið ?
Hvað myndir þú sjálf/ur vilja nota á þinni síðu (ef þú ert með WordPress).
Jæja.. Ég er búinn að taka þá ákvörðun að halda áfram að þróa Scribe *jeij* =D
Kerfinu skipti ég í fjóra parta en þeir verða:
- Scribe:CMS
- Scribe:Blog
- Scribe:Commerce
- Scribe:CRM
Ástæða fyrir þessu er sú að ég er með nokkra kúnna sem eru búnir að biðja um vefverslunarkerfi sem er einfalt, ég prófaði fyrst að setja upp Magento kerfið (dæmi) til að sýna þeim hvernig kerfi væri hægt að hafa allt og ekkert í einu ready made kerfi en flestir (ef ekki allir) vildu eitthvað einfalt sem bara virkaði. Magento er rosalega flott og vel skrifað kerfi, open source og kostar því ekki baun. En það er ögn flókið fyrir marga að læra á það. Svo er ekki eins einfalt að þema það og þeir gefa upp.
Fyrsta Scribe kerfið sem verður klárað verður því Scribe:Commerce (vefverslunarkerfið). Næst á listanum er líklegast Scribe:CRM fyrir okkur til að notast við innanhús til að halda utan um kúnna, verk og slíkt. Verður í raun ekki real CRM kerfi þannig séð, ekki í þeim tilgangi sem Microsoft CRM er notað td. En það verður meira sniðið að þeirri þörf að halda utan um ma.
- Kúnnar: Upplýsingar um kúnna, póst, stillingar og annað eins
- Verk: Hin ýmsu verk sem við vinnum fyrir fólk útí bæ.
- Reikningar: Hægt að prenta út reikningsyfirlit til að nota með DK/Navision ofl. kerfum (sem fylgiskjöl)
- Tímaskráningar: Skrá niður hvað var gert í hvaða verki, hversu mikinn tíma það tók og slíkt.
Þetta eru allavega helstu partar sem ég hef sett á blað sjálfur. Má vel vera að það bætist meira við, jafn vel að maður græji mobile client fyrir þetta upp á tímaskráningar í verk. Væri hægt að nota þann client td. í símum og fartölvum. Spurning samt um að gera clientinn helst í einu tungumáli sem virkar þá á öllum stýrikerfum (which will be hard!).
Scribe:Blog mætir svo líklegast afgangi, þar sem það eru fæstir sem þurfa á blogkerfi á að halda. Má líka vel vera að það kerfi verði aldrei til. Sjáum allavega til bara ;D
Er aðeins búinn að vera að fikta við gamla góða Scribe’ið núna sl. daga. Komið nýtt útlit, hegðun og annað í kerfið. Spurning hvort það fari að nálgast “stable” hjá mér? ;) Hér er, eins og sést, mynd af innskráningunni á nýja kerfinu =D Hvernig finnst ykkur ?
Eins og sést þá er þetta EKKERT líkt gamla stuffinu, bakendinn sjálfur er rosalega mikið breyttur.
Ástæðan af hverju ég er búinn að þessu er sú að eitt verkefni sem ég hef verið að vinna í núna í töluverðan tíma byggir á Scribe og því var þetta “í leiðinni” að framkvæma =)
Endilega commentið á look’ið og ef áhugi er fyrir þá get ég jafnvel hent inn skjáskotum eða bara vídeó’i af því hvernig bakendinn virkar núna =)
Jæja, tókst að importa gömlu færslunum úr Scribe:CMS kerfinu hjá mér, því miður býður WordPress ekki á að lesa inn comment líka þannig að öll commentin sem voru á gömlu síðunni fylgja ekki með.
En, það er allavega léttir að geta fengið gömlu færslurnar aftur, þó það vanti mögulega myndir og annað slíkt.
Þess má geta að hlekkir, myndir, vídeó og annað slíkt í gömlu færslunum virka ekki. Ég er að pæla í að leyfa því bara að eiga sig í friði. Ég mun hinsvegar henda inn smá vídeó’i og lagi á eftir, til að testa plugin sem ég var að henda inn.. so be warned! =D
Jæja, fyrsta færslan á “nýrri síðu”.
Ég er búinn að ákveða það að setja Scribe:CMS á hilluna í bili eins og eldri færslur á gömlu síðunni gáfu til kynna. Málið er að ég hef hreinlega ekki tíma til að standa að því að forrita kerfið sem stendur og er því búinn að flytja mig sjálfan yfir í WordPress for the time being..
Ég mun dútla mér í Scribe:CMS eitthvað, en áframhaldandi þróun og slíkt mun hætta tímabundið frá og með deginum í dag.
Þessi þema sem ég er að nota núna er einnig bráðabirgða þema sem ég verð með þar til ég er búinn að kynna mér hvernig þemur fyrir WordPress eru byggðar og slíkt.
Kristín er sjálf að fara að flytja sig yfir í WordPress núna fljótlega og mun ég einnig gera þemuna fyrir hennar síðu, þó svo að hún komi mögulega til með að vera með einhverja bráðarbirgðar þemu til að byrja með.
En já, ætla að fara að halda áfram með að stilla og svona en ég vildi allavega koma þessu á framfæri strax ;D
Nýjustu mótsvörin