Pælingar

Nú er svo komið að mér er boðið góður díll í World Class í gegnum vinnuna hjá mér, en ég er enn í áskrift hjá Sporthúsinu og mér líkar vel við að vera þar, en það er bara svo langt að keyra þangað. WC er td hér í Spönginni en Sporthúsið er í Kópavogi. Þannig að það telur fljótt að keyra þangað.

Það endar eflaust með því að ég hætti að pæla svona mikið í þessu og skelli mér bara á WC kortið, en mér finnst samt vera svo mikill mórall í fólki þegar maður minnist á WC.. Væntanlega útaf einhverju sem ég hef ekkert verið að pæla í..

Annars er það að frétta að við Victor frændi erum byrjaðir að vinna að verkefni sem verður vonandi að söluvöru fljótlega. Merkilegt hvað menn skilja hvorn annan þrátt fyrir það að vera í sitt hvoru landinu og geta unnið saman að sameiginlegu markmiði =) Ég minnist nú sérstaklega á það þar sem maður er vanur því að geta varla unnið með mönnum sem maður er að hitta og funda með reglulega, eins og vanin er hér á landi =P

Og já.. ég skipti um þemu aftur á síðunni =) Fyrir valinu í þetta skiptið var innbyggða þeman „Twenty Eleven“ sem fylgir með WordPress. Ástæðan fyrir þessu er að ég er með þessa þemu á annari síðu sem ég skrifa á og ég sá svo mikin mun á leturgerðum á síðunni að ég ákvað að prófa þetta á aðalsíðunni hjá mér líka. Má vel vera að ég eigi eftir að skipta aftur um þemu og fara aftur í fyrri þemu, en enn sem komið er verð ég áfram í þessari ;)

Fresh fresh

Eins og sagt er í laginu.

Fréttir hér af bæ eru helstar þær að stelpan er búin að vera fárveik með háan hita núna í að verða viku. Fór til læknis fyrr í vikunni og svo upp á barnaspítala hringsins fyrr í dag, eigum að fylgjast með henni núna um helgina og sjá hvort við fáum hana ekki til að drekka og borða meira þá þarf að leggja hana hinn á spítala til að fá í æð.. Ekkert svakalega hressandi staða..
Hún er búin að léttast um 5kg á innan við viku, það ætti að segja hversu uppþornuð hún er.. =/ Vonandi tekur þetta enda og hún fær lyst aftur.. rosalega erfitt að horfa upp á börnin sín í svona ástandi =/

Annars sér fólk kannski að ég hef verið að vinna við að rækta nördann í mér, búin vera að fiffa þemuna töluvert, setti svo upp Fluency Admin aftur á bakendanum, svakalegur munur á að sjá þetta núna og hvernig var.. Fluency Admin er svo í þokkabót komin með sína eigin stillingasíðu sem gerir manni kleift að breyta um lit á þemunni og hinum og þessum atriðum =)

Svo breytir viðbótin líka innskráningarglugganum sem birtist á stjórnborðinu. Svo getur þú séð á þessum tveim myndum hér að ég gat mjög einfaldlega sett mitt eigið logo á bæði innskráninguna og efst á valmyndina í stjórnborðinu.

Annars hef ég verið að vinna eins og ég get í þýðingunni minni, það bara virðast bætast svo margir strengir við í hvert skipti sem ég uppfæri skjalið =P Ég er komin með 82% af þýðingunni og á eftir 569 strengi, ég er að eyða dauðum stundum mínum í þetta, td. í matarhléum, frítíma á kvöldin og slíkt, en það lítur aldrei út fyrir að ég nái að saxa neitt á þetta =P

Þannig að ég auglýsi enn og aftur eftir fólki sem vill taka þátt í þýðingunni. Ef þú telur þig geta aðstoðað á einhvern máta er ég með öll tól sem þarf á vef, eina sem þarf að gera er að innskrá sig þar með notanda sem ég stofna og þá getur þú unnið í þýðingunni á þeim vef. Ég fer að vísu yfir allar þýðingar til að passa að allt samhæfist eldri þýddum strengjum í þýðingunni, en fólk fær fullt kredit fyrir sína vinnu! =)

Þannig að, viljirðu hjálpa, máttu endilega senda mér línu. Sama þó það sé bara einn og einn strengur, þá er það því mun minna fyrir einn mann að þýða ;)

Uppfærsla á þýðingu

Vildi benda fólki á að það er komin lítilsháttar uppfærsla á þýðinguna til að samhæfast WordPress 3.2.
Þýðinguna er hægt að nálgast með því að smella á „Uppfæra þýðingu“ hnappinn í WPis viðbótinni.

Annars er ég að leita að virkum þýðendum sem vilja leggja hönd á plóg og koma hlutfalli þýdda strengja í 100% með mér ;D Þannig að ef þú hefur áhuga á að hjálpa til mæli ég eindregið að þú hafir samband við mig sem fyrst ;D

Uppfærsla á WPis

Jæja, það hlaut að koma að því að mér gæfist tími til að dúlla mér aðeins og WPis viðbótinni minni.

Ég er búinn að vera að vinna í henni í dag og er búinn að gera töluverðar breytingar á henni.

Læt hérna fylgja með skjáskot af útlitinu eins og er, það sem helst sést þar er að það eru tvær stórar breytingar sem sjást klárlega..
Fyrst er að nefna það að viðbótin er nú komin á undirsíðu undir „Stillingar“ og er því ekki að plaga fólk í efra hægra horninu.
Hitt atriðið er svo að þarna hægra megin sést fréttastraumur frá mér, þar sem ég get kynnt fyrir fólki ýmislegt um verkefnið og uppfærslur.

Andleysi enn eina ferðina

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Ég er búinn að vera óttarlega andlaus núna síðustu vikur eftir að törninni hjá Guðmundi Tyrfings lauk, ferðamannatímaliðið greinilega liðið og lítið um ferðir að fá. Búinn að vera heima og hef eiginlega ekkert haft að gera nema það jú að við frúin nældum okkur í árskort í Sporthúsinu, það gengur prýðilega að mæta og við finnum strax mun á okkur varðandi þol og fleirra.

Það verður skrítið að hafa ekkert að gera núna í vetur og ég er strax byrjaður að pæla í verkefnum sem ég get dundað mér í, ofarlega þar á lista eru:

  • Verða mér út um timbur og smíða td. skáp inn á baðherbergi, ljósaplötur í loft ofl í íbúðina.
  • Vinna í þýðingunni sem ég stofnaði hér um árið fyrir WordPress.
  • Endurforrita WPis viðbótina mína og uppfæra helling varðandi hana.
  • Dúlla mér í einu sérverkefni sem tengist forritun og mikilli Blender vinnslu.

Þetta er ekki tæmandi listi og það á eflaust eitthvað eftir að bætast við, sé vel fyrir mér að maður verði að finna sér margt og mikið til viðbótar við þetta til að hafa nóg fyrir stafni í vetur ef ekkert annað býðst.. Veit bara að ég er ekki að höndla eins vetur og síðast þegar ekkert var í boði hérna. Svona atvinnuleysi fer alveg með mann og það að hanga heima alla daga og einu mannlegu samskiptin eru í gegnum tölvur eða síma.

Dagurinn í dag er annars búin að vera hin besti, veðrið úti gerir svo kammó og þægilegt andrúmsloft inni finnst mér, búið að rigna nánast án þess að stoppa í allan dag. Ég renndi út í búð fyrr í kvöld og þegar ég kom til baka drap ég á bílnum og sat í þögninni í smá stund. Verulega þægilegt að sitja grafkyrr, loka augunum og hlusta á rigninguna berja bílinn með dropunum.

Svo er rútínan komin í gang eins og margir segja, skólinn og leiksskólinn komnir í gang. Ferlega þægilegt, bara óskandi að ég hefði einhvern stað til að fara á til að vinna líka ;D

Eins og þú hefur eflaust tekið eftir þá er Ray LaMontagne sá tónlistarmaður sem ég hlusta sem mest á þessa dagana, var að uppgötva hann núna rétt um daginn og hef varla hætt að hlusta á hann.. Ferlega skrítið hvað ég fell fyrir svona rólegri tónlist þessa dagana, gæti tengst eitthvað komu vetrar ;)

Svo í þokkabót sérðu væntanlega stóra breytingu á vefnum hjá mér, ákvað að taka inn þemu sem heitir Smooth og breyta henni soldið, vinn hana eflaust meira til núna í náinni framtíð, en ég er líka að vinna í því að gera mína eigin þemu sem verður einhvern tíman tilbúin. Spurning bara hvenær ? ;)