Eins og sagt er í laginu.
Fréttir hér af bæ eru helstar þær að stelpan er búin að vera fárveik með háan hita núna í að verða viku. Fór til læknis fyrr í vikunni og svo upp á barnaspítala hringsins fyrr í dag, eigum að fylgjast með henni núna um helgina og sjá hvort við fáum hana ekki til að drekka og borða meira þá þarf að leggja hana hinn á spítala til að fá í æð.. Ekkert svakalega hressandi staða..
Hún er búin að léttast um 5kg á innan við viku, það ætti að segja hversu uppþornuð hún er.. =/ Vonandi tekur þetta enda og hún fær lyst aftur.. rosalega erfitt að horfa upp á börnin sín í svona ástandi =/
Annars sér fólk kannski að ég hef verið að vinna við að rækta nördann í mér, búin vera að fiffa þemuna töluvert, setti svo upp Fluency Admin aftur á bakendanum, svakalegur munur á að sjá þetta núna og hvernig var.. Fluency Admin er svo í þokkabót komin með sína eigin stillingasíðu sem gerir manni kleift að breyta um lit á þemunni og hinum og þessum atriðum =)
Svo breytir viðbótin líka innskráningarglugganum sem birtist á stjórnborðinu. Svo getur þú séð á þessum tveim myndum hér að ég gat mjög einfaldlega sett mitt eigið logo á bæði innskráninguna og efst á valmyndina í stjórnborðinu.
Annars hef ég verið að vinna eins og ég get í þýðingunni minni, það bara virðast bætast svo margir strengir við í hvert skipti sem ég uppfæri skjalið =P Ég er komin með 82% af þýðingunni og á eftir 569 strengi, ég er að eyða dauðum stundum mínum í þetta, td. í matarhléum, frítíma á kvöldin og slíkt, en það lítur aldrei út fyrir að ég nái að saxa neitt á þetta =P
Þannig að ég auglýsi enn og aftur eftir fólki sem vill taka þátt í þýðingunni. Ef þú telur þig geta aðstoðað á einhvern máta er ég með öll tól sem þarf á vef, eina sem þarf að gera er að innskrá sig þar með notanda sem ég stofna og þá getur þú unnið í þýðingunni á þeim vef. Ég fer að vísu yfir allar þýðingar til að passa að allt samhæfist eldri þýddum strengjum í þýðingunni, en fólk fær fullt kredit fyrir sína vinnu! =)
Þannig að, viljirðu hjálpa, máttu endilega senda mér línu. Sama þó það sé bara einn og einn strengur, þá er það því mun minna fyrir einn mann að þýða ;)


