Ég hef ekki verið neitt alltof duglegur það sem af er þessu ári en ég ætla að reyna að vera duglegri fljótlega.
Sem stendur er ég enn í meiraprófsnáminu, er búinn að ljúka bóklega algerlega og stóðst það með prýði, er nú í verklegum tímum í vörubifreið áður en ég tek próf í henni og fer svo í verklegt nám í hópflutningabílnum (rútu). Munurinn þar á milli eru heilir 3 metrar, þeas. sem rútan er lengri, en auk þess eru bæði aftur og framdekkin innar á rútunni en á vörubílnum og því sitt hvor hluturinn að fara fyrir horn eða bara að beygja á annað borð.
Varðandi nördann í mér er ég búinn að reyna að hafa nóg fyrir stafni þar líka. Forritaði litla viðbót fyrir Rósu Stefánsdóttur, fyrir vef sem hún var að setja upp.
Svo gaf hún mér þetta litla hrós á twitter á meðan ég var að forrita hana.
En svo byrjaði ég fyrr í dag á viðbót fyrir þýðinguna góðu sem við vorum byrjaðir á hérna nokkrir félagarnir fyrir einhverjum vikum síðan. Pælingin bakvið þá viðbót er að maður geti nýtt sér innbyggða uppfærsluhaminn í WordPress til að uppfæra sjálfa þýðinguna án þess að notandinn þurfi að sækja neitt sjálfur og breyta einhverju handvirkt. Nema þá jú í byrjun þar sem mér er mein illa við að láta viðbótina eiga eitthvað við wp-config.php sem er alveg hægt, en .. bad ethics að mínu mati. Held að fólk taki ekkert alltof vel í slíkt.
Eina handvirka sem fólk yrði að gera sjálft væri þetta klassíska að breyta í þeirri skrá wp_lang í is_IS í blábyrjun, svo sæi viðbótin alfarið um sig og þýðinguna. Þannig að nóg væri að smella á hnapp í bakenda WordPress til að uppfæra allt heila klabbið.
Svona á persónulegum nótum er þetta búið að vera ein heljarinar vika og helgi að baki.. Strákurinn fór í hálskirtlatöku á föstudagin og er enn að jafna sig á því, einkum þó vegna þess að hann varð veikur í þokkabót, kvefpest einhver og hiti með. Er búinn að vera að hósta mikið núna, svo mikið í raun að ég brunaði rétt fyrir tólf áðan í Lyfju í Lágmúla og nappaði þar einni flösku af Pektólín fyrir hann, var hætt að litast á þetta hjá honum greyinu. =/
Stelpan var hjá foreldrum mínum yfir helgina en það vildi ekki betur til en að hún varð líka veik, fékk hátt í 40°c hita þegar mest var en hún fer að vísu í skóla á morgun, allt gengið niður hjá henni. En svona er þetta.. gerir ekki boð á undan sér.
Það er samt svo skelfilega skrítið að heyra drengin tala núna, röddin er svo lítil og há-tóna.. alger mús allt í einu. Tók upp smá vídeó af honum talandi fyrr í dag og ætla sko innilega að halda upp á það til framtíðar!
Varðandi þessa viðbót sem ég minntist á áðan, þá er ég að vonast til að hún verði komin í gagnið fyrir/um helgina næstu. En maður á aldrei að lofa einhverju sem er svona auka, þannig að það er viðmiðun en ekki markmið ;) Ég mun allavega kynna það vel hér á síðunni þegar hún er komin í gagnið =)
Svo verður vonandi enn ein síðan frá mínu teikniborði komin á laggirnar og ég get sýnt ykkur hana í þokkabót ;D

Er það bara ég eða er fólk virkilega farið að misnota Flash ? Ég leit inn á mbl.is áðan í Safari þar sem ég er með plugin sem blockar Flash en leyfir mér að virkja stakt eins og mér hentar, lítið bara á