WPis 1.0!

Það hlaut að koma að því að ég myndi ná þessum áfanga! Nú er ég loksins búin að ljúka við að forrita WPis viðbótina fyrir WordPress kerfi.

Ef þú veist ekki hvað WPis viðbótin er þá ætla ég að benda þér á þessa undirsíðu hjá mér.

Ég er frekar ánægður með þetta stóra skref, enda er þetta fyrsta forritunarverkið sem ég hleypi frá mér sem er ekki bara fyrir einn kúnna og búið.

Ég er klárlega ekki besti forritari í heimi, ég veit það vel, en ég tel að ég hafi sett þessa viðbót saman á góðan máta ;)

Ef þú hefur einhverjar spurningar, ábendingar eða hefur einhverja aðra ástæðu til að hafa samband við mig hvet ég þig eindregið til þess. Annað hvort með því að skilja eftir skilaboð á þessari færslu eða með því að smella á viðeigandi hlekk í valmyndinni hér að ofan ;D

Annars mæli ég bara með því að þeir sem hafa áhuga á að nota viðbótina smelli sér á hana.

WPis 1.0

Jæja, þá kom að því að maður myndi ná þessari viðbót í útgáfu 1.0.
Er að vísu að prófa fram og til baka, en sýnist að allt virki sem skyldi og því ætti fólk að geta nálgast viðbótina fljótlega hjá mér.

Varðandi þýðinguna hinsvegar þá er ég að vinna eins hratt og ég get til að klára hana, en það eru meira en 1000 strengir óþýddir í 3.1 þýðingunni, en það gengur frekar vel samt að ganga á þann fjölda. Ef þig langar að leggja hönd á plóg ekki hika við að hafa samband með að senda mér póst á axelrafn hjá axelrafn punktur org.

Sem stendur mæli ég ekki með að fólk noti þær þýðingar sem hafa verið að koma í dag, eitthvað í þeim virðist gera ritilinn óvirkann þannig að það er ekki hægt að skrá nýja færslu né síðu í kerfið. Ég er að kanna hvað það er sem er að valda því þessa stundina =)

Uppfærsla á WPis

Jæja, það hlaut að koma að því að mér gæfist tími til að dúlla mér aðeins og WPis viðbótinni minni.

Ég er búinn að vera að vinna í henni í dag og er búinn að gera töluverðar breytingar á henni.

Læt hérna fylgja með skjáskot af útlitinu eins og er, það sem helst sést þar er að það eru tvær stórar breytingar sem sjást klárlega..
Fyrst er að nefna það að viðbótin er nú komin á undirsíðu undir „Stillingar“ og er því ekki að plaga fólk í efra hægra horninu.
Hitt atriðið er svo að þarna hægra megin sést fréttastraumur frá mér, þar sem ég get kynnt fyrir fólki ýmislegt um verkefnið og uppfærslur.

Lífsmark

Jæja, ég er búinn að vera frekar útaf kortinu núna nýverið sökum þess að ég var að klára D réttindin mín og hef hafið störf hjá Guðmundi Tyrfingssyni að keyra rútur þar.

Ég hef sagt skilið við tækniheiminn með öllu, þeas. ég er hættur að vinna sem freelance í þeim bransanum. Mun eflaust vera að bralla ýmislegt við hitt og þetta samt þrátt fyrir það, en þá bara á mínum tíma, í mínum verkefnum.

Ofarlega á lista er að taka WPis í gegn og redda nýrri þýðingu fyrir WP3, slatti af nýjum strengjum sá ég sem þarf að laga og þýða.

Annars er ég að leggja í túr á morgun í 14 daga, hringferð með meiru þannig að ég er á fullu að undirbúa mig fyrir það, vildi allavega skella inn einni lítilli færslu hérna til að láta vita af mér ;D

Akismet

Ég hef nú ekki þurft að kvarta neitt undan Akismet viðbótinni fyrir WordPress varðandi að ráða við spam mótsvör á síðunni hjá mér, en núna rétt áðan tók ég eftir mótsvari sem hefði aldrei nokkurn tímann átt að geta sloppið framhjá Akismet.. Eins og staðan er núna þá hefur Akismet stoppað 2,359 rusl-athugasemdir en sjáiði bara þetta ferlíki sem beið eftir samþykki hjá mér…

Hvernig má vera að mótsvar með þetta mörgum hlekkjum geti ekki talist sem spam ? Mér er spurn =P