Framtíð síðunnar

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Ég er að dúlla mér aðeins að leika mér að setja upp síðuna í Fireworks hjá mér, hlustandi á Manic Street Preachers á fullu (sjá meðfylgjandi lag).. Er svo líka að melta með headerinn á útlitinu sem ég er að malla núna, hafa það soldið grunge-legt:

Hvað finnst þér um þetta? Það verður að vísu á dökkum bakgrunni og skugginn deyr ekki svona skyndilega eins og þessu dæmi ;)

Annars er ég búinn að vera að testa á fullu Ubuntu 10.04 alpha þessa dagana og hef bara fundið einn hlut sem ég vona að haldist ekki í endanlegri útgáfu af 10.04.. þeas. þeir fluttu takkana til að loka, minnka og stækka gluggana á efra vinstra hornið frá efra hægra horninu.. Svona eins og er í Mac, nema hvað í Mac er þetta speglað, þeas. að hnapparnir frá vinstri til hægri er: Rauður (loka), Gulur (minnka), Grænn (stækka)… Í alpha útgáfunni af Ubuntu er þetta hinsvegar akkúrat öfugt.. þannig að ég er alltaf að smella á loka þegar ég ætla að stækka og öfugt =P kinda sucks!

WPis 0.4

Jæja, þá er komin nýrri útgáfa af viðbótinni og er hún fáanleg með því að smella hér.

Eina sem á að þurfa til að setja þessa viðbót upp er að í wp-config.php sé eftirfarandi stilling svona: define (‘WPLANG’, ‘is_IS’);

Eftirfarandi er svokallaður changelog sem er að vísu á ensku, en það er skilyrði sem WordPress.org setur =)

Changelog:
0.4 (2010-03-10)
Lagfærði:
+ Skilboð gerð skiljanlegri

0.3 (2010-03-02)
Bætti við:
+ Villuboð ef cURL er ekki uppsett
+ nota nú sys_get_tmp_dir til að fá upp tmp geymslu þjóns

0.2 (2010-02-28-r1)
Bætti við:
+ athuga hvort languages mappan sér til inni í wp-includes, ef til uppfæra eðlilega, ef ekki, búa hana þá til fyrir uppfærslu.

Lagfærði:
+ breytti útliti á reitnum sem birtir viðbótina í haus stjórnborðs.
+ lagaði titil viðbótar á stjórnborðinu.

0.1 (2010-02-28)
Fyrsta útgáfan komin í gagnið.
+ athuga með hvort nýjasta útgáfan sé í notkun, ef nýrra til sækja nýrri og skrifa yfir eldri

Ef þú hefur einhverjar athugasemdir, tilmæli eða vilt á annað borð tjá þig um viðbótina er þér bent á mótsvörin við þessari færslu ;D

WPis 0.2

Jæja, þá er fyrsta útgáfan af viðbótinni minni fyrir þýðingu okkar félaga tilbúin.
Tók ekkert alltof langan tíma, ég stalst til að nota CSS’inn sem er notaður í Hello Dolly dæmis viðbótinni sem kemur standard með WordPress. Kaus að nota þá leiðina í stað þess að vera að koma með heila síðu á bakendanum bara fyrir þetta eina.

Eina sem sést af viðbótinni er sýnt á myndinni hér að neðan:

Eins og sést fer ekki mikið fyrir henni. Það eru tveir hlekkir þarna, annar sem vísar á síðuna hérna hjá mér og svo hinn til að athuga með nýrri útgáfu af þýðingarskjalinu, ef það er í boði þá uppfærir viðbótin skjalið og birtir að því loknu skilaboðin: „Uppfærslu lokið!“, ef þú ert hinsvegar með það nýjasta birtast skilaboðin: „Þú ert með nýjasta!“ og meira gerist ekki =)

Til að viðbótin virki þarf fyrst að fylgja einu einföldu skrefi:

  1. Breyta stillingunni „define (‘WPLANG’, “);“ í „define (‘WPLANG’, ‘is_IS’);“ sem er að finna í „wp-config.php“ skjalinu.

Eftir þetta er óhætt að setja viðbótina upp og láta hana sjá um að sækja nýjasta þýðingarskjalið hverju sinni.

Með því að forrita þessa viðbót fyrir fólk er ég að reyna að gera ferlið sem einfaldast og minnka vesen við þetta ferli almennt. Til að byrja með þarf að fylgja þessu skrefi hér að ofan, en stefnan er tekin á að fólk geti sett viðbótina inn í gegnum WordPress sjálft og að viðbótin sjái sjálf um að breyta því sem þarf að breyta. Ég er sem stendur að prófa þetta fram og til baka, en ef einhver vill aðstoða við það þá er öll hjálp vel þegin sama hvort er að prófa viðbótina eða að forrita ;) Áhugasamir hafi samband í gegnum mótsvörin við þessari færslu =)

Smá fréttir

Ég hef ekki verið neitt alltof duglegur það sem af er þessu ári en ég ætla að reyna að vera duglegri fljótlega.

Sem stendur er ég enn í meiraprófsnáminu, er búinn að ljúka bóklega algerlega og stóðst það með prýði, er nú í verklegum tímum í vörubifreið áður en ég tek próf í henni og fer svo í verklegt nám í hópflutningabílnum (rútu). Munurinn þar á milli eru heilir 3 metrar, þeas. sem rútan er lengri, en auk þess eru bæði aftur og framdekkin innar á rútunni en á vörubílnum og því sitt hvor hluturinn að fara fyrir horn eða bara að beygja á annað borð.

Varðandi nördann í mér er ég búinn að reyna að hafa nóg fyrir stafni þar líka. Forritaði litla viðbót fyrir Rósu Stefánsdóttur, fyrir vef sem hún var að setja upp.

Svo gaf hún mér þetta litla hrós á twitter á meðan ég var að forrita hana.

En svo byrjaði ég fyrr í dag á viðbót fyrir þýðinguna góðu sem við vorum byrjaðir á hérna nokkrir félagarnir fyrir einhverjum vikum síðan. Pælingin bakvið þá viðbót er að maður geti nýtt sér innbyggða uppfærsluhaminn í WordPress til að uppfæra sjálfa þýðinguna án þess að notandinn þurfi að sækja neitt sjálfur og breyta einhverju handvirkt. Nema þá jú í byrjun þar sem mér er mein illa við að láta viðbótina eiga eitthvað við wp-config.php sem er alveg hægt, en .. bad ethics að mínu mati. Held að fólk taki ekkert alltof vel í slíkt.

Eina handvirka sem fólk yrði að gera sjálft væri þetta klassíska að breyta í þeirri skrá wp_lang í is_IS í blábyrjun, svo sæi viðbótin alfarið um sig og þýðinguna. Þannig að nóg væri að smella á hnapp í bakenda WordPress til að uppfæra allt heila klabbið.

Svona á persónulegum nótum er þetta búið að vera ein heljarinar vika og helgi að baki.. Strákurinn fór í hálskirtlatöku á föstudagin og er enn að jafna sig á því, einkum þó vegna þess að hann varð veikur í þokkabót, kvefpest einhver og hiti með. Er búinn að vera að hósta mikið núna, svo mikið í raun að ég brunaði rétt fyrir tólf áðan í Lyfju í Lágmúla og nappaði þar einni flösku af Pektólín fyrir hann, var hætt að litast á þetta hjá honum greyinu. =/

Stelpan var hjá foreldrum mínum yfir helgina en það vildi ekki betur til en að hún varð líka veik, fékk hátt í 40°c hita þegar mest var en hún fer að vísu í skóla á morgun, allt gengið niður hjá henni. En svona er þetta.. gerir ekki boð á undan sér.

Það er samt svo skelfilega skrítið að heyra drengin tala núna, röddin er svo lítil og há-tóna.. alger mús allt í einu. Tók upp smá vídeó af honum talandi fyrr í dag og ætla sko innilega að halda upp á það til framtíðar!

Varðandi þessa viðbót sem ég minntist á áðan, þá er ég að vonast til að hún verði komin í gagnið fyrir/um helgina næstu. En maður á aldrei að lofa einhverju sem er svona auka, þannig að það er viðmiðun en ekki markmið ;) Ég mun allavega kynna það vel hér á síðunni þegar hún er komin í gagnið =)

Svo verður vonandi enn ein síðan frá mínu teikniborði komin á laggirnar og ég get sýnt ykkur hana í þokkabót ;D