Akismet

Ég hef nú ekki þurft að kvarta neitt undan Akismet viðbótinni fyrir WordPress varðandi að ráða við spam mótsvör á síðunni hjá mér, en núna rétt áðan tók ég eftir mótsvari sem hefði aldrei nokkurn tímann átt að geta sloppið framhjá Akismet.. Eins og staðan er núna þá hefur Akismet stoppað 2,359 rusl-athugasemdir en sjáiði bara þetta ferlíki sem beið eftir samþykki hjá mér…

Hvernig má vera að mótsvar með þetta mörgum hlekkjum geti ekki talist sem spam ? Mér er spurn =P

Eðlileg vinnubrögð ?

Nú dag kl 9:32 lendum við í því hérna heima að netið dettur út, sem er svo sem ekki frá sögu færandi nema hvað að heimasíminn dettur líka út.. Engin sónn eða neitt. Fyrir utan er bíll frá Mílu að vinna í Ljósneti Símans (ættu þeir að vera að því?) og það stökk strax upp í fyrsta sætið yfir mögulegar ástæður þess að allt væri úti, þegar ég horfi útum þakgluggann sé ég klárlega að hann er með stórt hnippi af símalínum í höndunum. Ég ákvað því að láta frúnna tékka fyrst hjá Vodafone hvort það væri ekki örugglega allt í orden þar, sem og var. Þannig að ég hringi í Mílu til að fá upplýsingar þaðan hvað sé í gangi. Þar vill kerlingin sem svarar símanum ekkert meina að neitt sé í gangi sem tengist símalögnum eða neitt..
Hún hringir í einhvern tæknimann sem svarar henni og segir hreint út að það sé ekkert verið að vinna í símalögnum og hvað eina.. sem hún segir mér, ég bendi þá á að ég stari á manninn og hann sé með þetta hnippi í höndunum, ég hafi sjálfur unnið með slíkar lagnir þannig að ég viti alveg að það sé víst verið að vinna með þetta, ég vilji fá svör um þetta og ástæðu fyrir því að maður fær enga aðvörun, fyrirvara eða neitt ef um einhverja viðgerð er að ræða.
Þá reynir hún að hringja aftur í einhvern sem lætur hana bara sitja á bið og á endanum segir hún mér alveg það sama og áður, það sé *ekki* verið að vinna í neinum símalögnum á þessum stað og því sé þetta eitthvað hjá Vodafone en ekki þeim. Ég eigi að snúa mér þangað, þrátt fyrir þær upplýsingar að ég sé þegar búinn að athuga þar.

Ég enda með því að rölta út og horfi ofan í gryfjuna hjá greyið manninum hérna úti, þá var jú planið að vinna í ljósnetinu en við uppgröftinn eða eitthvað kom eitthvað fyrir “múffuna” og því sé hreinlega búið að aftengja alla götuna takk fyrir..

Hvernig má vera að þetta sé normið ? Ég hringi í fyrirtækið sem er að vinna í lögnunum hérna úti og engin veit neitt.. ég tala við manninn þar úti og hann játar þetta klárt og simple..

Ég hélt að ef það væri verið að fara að vinna í þessum grunnlögnum, hita, rafmagni eða jarðlínu (síma) þá YRÐI að tilkynna það ? Það er ekki eins og þetta hafi bara gerst áðan .. netið og síminn virkaði fínt þar til hann klippti á þetta hérna hjá okkur.. Þar að auki var það fyrir helgi sem grafan var hérna og gerði þessa holu í jörðina, ekki í morgun.

Fyrst það líður svona langur tími frá því að þetta var grafið og að þessi “múffa” skemmdist, hafði Míla þá ekki nægan tíma til að láta vita í hverfinu með þetta ? Og í versta falli, ef þetta uppgötvaðist bara áðan þegar hann hefur ætlað að fara að vinna í þessu Ljósneti Símans, þá hefði hann ekkert átt að aftengja nokkurn skapaðan hlut án þess að láta vita af sér, að lágmarki til þess fyrirtækis sem hann er að vinna fyrir hérna í götunni!

Mér fannst annars guttinn hérna úti á Mílu bílnum en í Síminn kuldagallanum vera mikið liðlegri en kerlingin á skiptiborðinu hjá Mílu.. Pirrar mig samt skelfilega að þetta sé “normið” að flæði upplýsinga hjá fyrirtækjum sé svona ábótavant og að ef það er skylda að tilkynna viðgerðir fyrirfram að það sé ekki gert.

Feginn, fegnari, fegnastur!

Nú í síðustu viku hrundi hjá mér þjónninn sem ma. hýsir þennan vef, þeas. diskurinn sem innihélt MySQL grunnana og póstinn var allt í einu hlaðinn bad sectors, virkaði fínt meðan vélin var í gangi en sökum þess að það þurfti að slökkva á vélinni um stund þá þurrkaðist index’inn út á disknum.

Svo til að toppa allt þá virkaði ekki afritunarscriptan sem ég forritaði og testaði ítrekað í VMWare vél hjá mér, þannig að ég sat eftir með sárt ennið að reyna að redda gögnunum af þessum handónýta disk.. 184 bad sector’ar voru á blá byrjun þeirrar disksneiðar sem gögnin voru á og því var indexinn og eitthvað af journal inode’unum farnar.. Virkaði ekkert að reyna að mount’a né keyra fsck á diskinn, ekki hægt að laga sökum þess að endalausar I/O villu meldingar birtust og forrit eftir forrit dó við að reyna að bjarga gögnunum.

Ég reyndi dd ofl forrit.. ég var búin að láta vélina malla með ýmsan hugbúnað í 3 sólarhringa, þar til ég gafst upp og var komin á Google enn eina ferðina og viti menn, þar rakst ég á litla færslu í bloggi hjá einhverjum austurlandabúa sem skrifaði um lítið tól sem hann hefði notað (eða skrifað?) sem héti dd_rescue. Það væri byggt á dd en það hreinlega hoppaði yfir slæmu partana, en einbeitti sér ekki að þeim líkt og önnur forrit. Ég prófaði að keyra þetta og dumpa output’inu í dump.img skrá og viti menn, 3 klst síðar átti ég 180GB IMG skjal sem var nákvæmt afrit af disknum, nema þetta afrit gat ég keyrt fsck á og mountað svo via loopback og sótt öll gögnin óskemmd!

Moral of the story:

  1. Alltaf tryggja að backup sé í gangi
  2. dd_rescue er ÓMISSANDI tól!

Vona að þetta útskýri blackout’ið hérna og á mörgum öðrum síðum ;) Ég er að vinna í að reyna að koma öllu upp aftur.

Tómar eyður

Mig hefur lengi langað að setja tómar eyður á milli forrita í stikunni hjá mér í Mac OS X, sjá að ofan. Ég ákvað að leita aðeins að því hvernig þetta er gert og sá þá að þetta er sára einfalt.

  1. defaults write com.apple.dock persistent-apps -array-add ‘{ “tile-type” = “spacer-tile”; }’
  2. killall Dock

Fyrri skipunina gerirðu til að búa til eyðu, en hún birstist ekki fyrr en þú hefur keyrt þá seinni. En til að setja inn fleirri en eina eyðu í einu keyrðirðu bara fyrri skipunina ítrekað og lýkur svo á seinni skipuninni. Því næst er bara að draga hverja eyðu fyrir sig á sinn stað í stikunni =)

Nýtt útlit á leiðinni

Ég held að þetta sé að verða neglt hjá mér varðandi útlitið á síðunni hjá mér =) Skelli hér inn smá mynd til að sýna smá hvað er í vændum ;)

Þetta útlit verður að sjálfsögðu allt á íslensku, með líklegast 3-4 mismunandi undirsíðu útgáfum. Verður fjör að forrita þetta allt ;D