Axel Rafn heiti ég eins og sést á nafni þessa léns.
Ég fæddist þann 13. desember árið 1979 í Vestmannaeyjum og bjó þar til þriggja ára aldurs, en þá fluttum við til Reykjavíkur, þar sem ég hef búið að mestu leiti síðan.
Ég er giftur Kristínu Ástu Jónsdóttur og á með henni tvö börn, þau Bylgju Rós (f. 2003) og Jón Hreiðar (f. 2005). Saman búum við í Grafarvogi í dag.
Þú getur nálgast ferilskrá mína (CV) hér.
Varðandi áhugamál og slíkt þá er listinn svooooo stór að ég veit ekki hvort ég eigi að þora að fara yfir hann allan..
Þau helstu eru í raun allt og ekkert sem viðkemur tölvum og tækni. Ég er þannig innrættur að ef ég hef tækifæri á að læra á eitthvað þá geri ég það. Ég hef ma. sett upp 1WireWeather veðurstöð í gegnum tíðina, verið með gSHDSL DSLAM og módem, sett upp póstþjóna með Sendmail, Postfix og Qmail (í þessari röð), Squid proxy þjóna, OpenVPN gateway fyrir fyrirtæki og sjálfan mig.. The list goes on and on..
Ég er harður OpenSource maður, trúi á að maður eigi að hugsa um fleirri en sjálfan sig og ekki alltaf vera að pæla í peningum og að verða ríkur.. (þó það sé gott í hófi, don’t get me wrong). Ég nota linux dags daglega sjálfur, þá sérstaklega Debian Linux.
Linux nota ég jafnt á borðvélar sem og þjóna hjá mér (persónulega og vinnutengt). Ég er svo með bæði iMac (2.8GHz 24″) og MacBook (2.0GHz) sem ég hef mjög gaman af þar sem Mac OS X er ekkert annað en Unix kerfi í dag (sjá Darwin sem er grunnurinn bakvið Mac OS X).
Undanfarin ár hef ég mikið unnið með WordPress og flest tengt því, þám. viðbætur (plug-in), þemur (themes) og íslenskar þýðingar.
Ég er stofnandi virks þýðingarhóps sem þýðir WordPress og hef forritað viðbót fyrir þá þýðingu til að notendur sem nota þýðinguna geti uppfært þýðinguna af stjórnborði síðunnar sinnar.