WordPress

Hér geturðu nálgast þá hluti sem ég sé um og eða á hluta að í tengslum við WordPress.

Viðbætur

WPis er lítil viðbót sem hefur átt erfiða fæðingu, en hún sér um að uppfæra íslensku þýðinguna sem ég hef verið að vinna að í.

Viðbótin býður upp á tvo valmöguleika að hverju sinni, að uppfæra fréttir frá mér og svo að uppfæra þýðinguna sjálfa. Ef að ný útgáfa af þýðingunni er í boði birtist útgáfunúmer hennar rautt neðarlega á WPis síðunni og aukaskilaboð birtast þar fyrir neðan sem ráðleggja notanda að uppfæra þýðinguna með því að smella á viðeigandi hnapp. Ef núverandi útgáfa er sú nýjasta birtist útgáfunúmerið hins vegar grænt eins og sést á myndinni hér að neðan.

Þú getur séð hvernig viðbótin lítur út með því að smella hér.

Þú getur sótt WPis viðbótina með því að smella hér.

Þýðingar

Íslensk þýðing fyrir WordPress er fáanleg með því að sækja WPis viðbótina hér að ofan, ef þú vilt ekki nota viðbótina en vilt frekar sækja beint .mo skjalið þá gerir þú það með því að hægri smella hér, velja save as eða sambærilegt og vista svo skjalið sem is_IS.mo.

Með því að nota viðbótina hér að ofan ertu þó í betri stöðu til að uppfæra þýðinguna að hverju sinni án vandræða.