WPis

WPis

Hér er hægt að nálgast viðbót mína WPis.
Til að nota þessa viðbót þarftu að fylgja eftirfarandi skrefum.

  1. Á bakenda WordPress hjá þér, fara undir „Viðbætur / Plugins“ og leita eftir WPis þar ásamt því að setja hana upp.
  2. Virkja viðbótina
  3. Breyta stillingunni define(“WPLANG”, “is_IS”); í wp-config.php og passa að þar standi is_IS í seinni reitnum.
  4. Fara undir „Stillingar – WPis“ og smella þar á „uppfæra þýðingu“.

Ef þú fylgir þessum skrefum þá ætti allt að smella saman og þú að geta sótt nýjustu útgáfuna af þýðingunni að hverju sinni.

Útgáfur 1.0.1 og 1.0.2

Breytti lýsingum og fleirru til að WPis gæti komist inn í gagnagrunn WordPress yfir viðbætur á síðunni þeirra. Hér eftir mun ég bara gefa út nýjar útgáfur á þeim vef.

Útgáfa 1.0

Þetta er fyrsta útgáfan sem er gefin út frá útgáfu 0.4.
Þeir sem hafa verið að nota gömlu útgáfuna taka eftir því að það er búið að breyta meðal annars því hvar viðbótin birtir upplýsingar, þær eru ekki lengur í haus síðunnar heldur komnar undir sér flipa undir Stillingar.

Til að sækja þessa útgáfu, smelltu þá hér.

Það kemur að öllum líkindum melding á skjáborðið hjá þér þegar þú virkjar viðbótina, í meldingunni stendur:

Viðbótin framkallaði XXXX stafi af óvæntri útprentun við virkjun. Ef þú verður var við “headers already sent” skilaboð, vandamál með RSS strauma eða önnur vandamál, prófaðu að afvirkja eða fjarlægja þessa viðbót.

eða á ensku:

The plugin generated XXXX characters of unexpected output during activation. If you notice “headers already sent” messages, problems with syndication feeds or other issues, try deactivating or removing this plugin.

Það þarf ekkert að óttast þessa meldingu, hver þessi XXXX stafa útprentun er hef ég ekki enn komist að, en allt virkar alveg eins og það á að gera og þetta gerist bara einu sinni, við virkjun á viðbótinni.